Heimilisblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 24
KOFI TOMASAR FRÆNDA
eftir Harriet Beecher Stowe, endursögd í myndum
9. Sá hópur ungra negraþræla, sem fyrirfannst á bú-
garöi Shelbys, rétt eins og á öörum stórum jöröum,
hafði enga ástæðu til að hafa samúð með Harley þræla-
kaupmanni, og einn þrælanna laumaði steinvölu imdir
hnakkpútuna á hesti hans, svo að klárinn velti honum
af sér óðara en hann var stiginn á bak. Á þennan hátt
fundu unglingar þessir upp á ýmsu öðru, sem tafið gat
förina, svo að Elisa fengi þeim mun betra forskot á
flóttanum með hinn unga son sinn.
10. Um morguninn var hún þegar komin margar míl-
ur á brott, en hún veitti sér engan tíma til hvildar.
Takmark hennar var Ohio-fljótið, sem rann á mörkum
Kentucky og Ohio. Þangað komst hún, en ferjan var
ekki í förum sökum rekíss á fljótinu. Henni var boðið
húsaskjól hjá ferjumanninum á meðan hún þurfti að
bíða.
11. Þrátt fyrir allar skammir og bölv Harleys, komst
hann ekki af stað fyrr en liðið var á daginn. Leiðsögu-
menn hans tveir, imgir piltar, leiddu hann afvega á
ýmsa þá vegarslóða, sem fyrirfundust og gátu tafið
hann, en að lokum komst hann þó á ferjustaðinn, þar
sem Elisa fylgdist með öllum mannaferðum út um
glugga.
12. Óðara en hún kom auga á þá, sem veittu henni
eítirför, varð hún gripin slikum ótta vegna sonar síns,
að hún þreif hann i fang sér, hljóp niður að fljótinu
og stökk út á ísjaka, sem flaut fram hjá bakkanum-
Harley staðnæmdist á bakkanum, kallaði og æpti upp>
en Elísa stökk af einum jakaninn á annan og náði
þannig — eins og fyrir kraftaverk — að komast yfir
á bakkann fyrir handan.
244
heimilisblaðið