Heimilisblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 7
tíma ræktunaraðferðum. En eins og sakir
standa er næstum enginn sem nennir því
að velja hnetur til sáningar frá þeim trjám,
sem gefið hafa beztan arðinn, eða nota
þann áburð, sem þó er mest til af: þang og
kókoshnetuskurn. Grand blanc nokkur við-
urkenndi, að þangið væri mjög verðmætt,
en hann yppti öxlum og sagði: „Bara að
guð almáttugur hefði gefið þanginu fæt-
ur!“ Hann vildi með öðrum orðum segja,
að það væri alltof mikil fyrirhöfn að safna
þangi saman og dreifa því yfir plantekr-
urnar.
Árið 1960 komu aðeins 490 ferðamenn til
eyjanna. En í heimi, þar sem allir leita að
friði, hvítum ströndum, bláu hafi og stöð-
ugu sólskini, eru Seychell-eyjarnar sann-
kölluð paradís.1) 65 kílómetra löng hring-
ferð um Mahé-eyju er líkust ferð um tróp-
ískan garð bylgjandi kókospálma. Hvar
sem „vegurinn" beygir, sér maður nýja
strönd eða nýjan flóa, stór björg í sjó fram,
sandrif úti fyrir með mergð fiskjar um-
hverfis, ellegar litlar eyjar sem gljá í sól-
nióðunni. Sérfræðingur einn hefur látið svo
um mælt, að umhverfis Seychell-eyjar sé
„furðulegasta og fjölbreyttasta dýra- og
gróðurlíf neðansjávar sem fyrirfinnist á
hnettinum.“ Meir en helmingur kvikmynd-
arinnar „Hinn þögli heimur“ (eftir Couc-
teau) er tekinn í grennd við Assumpion,
eina af Seychell-eyjunum.
Ætla mætti, að svo nærri miðjarðarlínu
væri loftslagið óþolandi heitt, en þetta er
þó ekki svo, enda þótt raki loftsins geti
orðið mjög mikill. í janúar og febrúar
streymir regnið úr lofti; sá sem verður
fyrir óvæntri dembu, rífur næsta banana-
blað, sem hann finnur, og notar það fyrir
vegnhlíf. Mestar líkur fyrir góðviðri eru á
tímabilinu júní—október. Fimm lítil hótel
°g þrjú matsöluhús eru talin vera á stigi
evrópu-menningar. Verð fyrir fæði og hús-
^æði á slíkum stað eru frá 2400 til 4200
!sl. krónur um mánuðinn.
!) Viðskiptajöfm- einn i London, Bernhard Stan-
^vrry, hefur ákveðið að snúa baki við heimsmenning-
hnni og setjast að ásamt hópi skoðanabræðra siima á
lólegum stað, fjarri hættunni af kjarnorkustyrjöld.
Kann er þeirrar skoðunar, að til þess ama séu Sey-
chell-eyjarnar ákjósanlegastar allra staða.
Auk allra þessara heillandi hluta hafa
Seychell-eyjar til að bera — að minnsta
kosti ennþá — enn einn kost: stjórnmála-
legan stöðugleika. Jafnvel sá stjórnmála-
leiðtogi á eyjunum, sem var mest á móti
Bretum, sagði við mig: „Það myndi vera
helber heimska af okkur að vilja slíta okk-
ur úr tengslunum. Ríki okkar er allt of lítið
til þess.“
En fyrir ferðalanginn er þarna eitt stórt
vandamál: eins og sakir standa er mjög
erfitt að komast til eyjanna. Hvorki á Mahé
né á öðrum þessara eyja eru staðhættir
þannig, að þar sé hægt að gera flugvöll
og geysidýrt myndi reynast að gera upp-
fyllingu undir slíkt mannvirki. Samt er
starfandi nefnd, sem athugar möguleikana
á slíku. Skipin frá Maombasa og Bombay
standa stutt við í Victoria, og koma þang-
að aðeins einu sinni í mánuði; en oftast
eru öll skipspláss pöntuð langt fram í tím-
ann.
Kvöld nokkurt ræddi ég við prest einn
um kenningu Gordons hershöfðingja.
„Kannski hafði hann á réttu að standa,“
mælti hann, og brá fyrir glampa í augum
hans. „Að minnsta kosti er eitt sameigin-
legt með Seychell-eyj um og Paradís: báðir
staðirnir eru fagrir, og þangað vilja allir
komast. Vandinn er bara sá, hvernig mað-
ur getur komizt þangað. Það er eins og
flestum sé fyrirmunað að komast til beggja
þessara staða.“
☆
FORN KINVERSK SPEKI
Sá maður, sem græðir fé, verður aldrei
þreyttur; sá maður sem er þreyttur,
græðir aldrei fé.
Kauptu einu sinni og greiddu út í hönd,
heldur en að verzla tíu sinnum og fá
alltaf lánað.
Leggðu fyrst ábyrgðina á herðar sjálfs þín,
síðan á annarra.
Munnur mannsins er aðeins tveir hlutar
af hörundi hans.
^eimilisblaðið 227