Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Síða 15

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Síða 15
aður í flugherinn, og hún býr enn heima hjá foreldrum sínum.“ Torsten drap í sígarettunni sinni í ösku- bakkanum, og hún gat lesið reiði og ör- vinglun út úr svip hans. „Já, svona er það,“ svaraði hann og var mikið niðri fyrir. „Ég hef hugleitt þetta, og mér þykir það ná engri átt. Það hefur enginn maður leyfi til að gera slíkt og þvílíkt.“ „Gera hvað?“ spurði Britt. „Binda unga stúlku við sig, þegar hann neyðist til að fara burt frá henni strax á eftir. Hann verður að hugleiða, hvers kon- ar líf hann býður henni upp á með því móti. Líttu bara á vinkonu þína.“ „Torsten, við hvað áttu eiginlega?" spurði Britt óttaslegin. Hann svaraði ekki strax. Loks sagði hann: „Ég hef hugsað mikið um þetta, Britt. Enginn maður hefur leyfi til að kvænast, fyrr en hann getur boðið stúlk- unni upp á það heimili og félagsskap, sem hjónabandið útheimtir. Hann hefur ekkert leyfi til að binda hana með loforðum og þjóta síðan frá henni. Slíkt er einber sjálfs- elska og ekkert annað. Enginn heiðarlegur maður getur gert það og haft snefil af sjálfsvirðingu á eftir.“ Hún brann í skinninu eftir að mótmæla þessu. Hún brann eftir því að hvísla: „Þannig er það alls ekki, Torsten. Þegar ung stúlka elskar mann, þráir hún að til- heyra honum, sama hvað kemur fyrir. Á þann einn hátt getur hún orðið hamingju- söm.“ Hana dauðlangaði til að segja þetta, en gat það ekki. Þjónninn gekk að borðinu þeirra með reikninginn og Torsten borgaði. Aldrei á ævi sinni hafði Britt verið eins hrædd og nú. Af samvizkusemi og ábyrgðartilfinn- ingu einni saman ætlaði Torsten sér að neita henni einmitt um það, sem hún þráði heitast af öllu! Hann ætlaði sér að neita henni um þá ósegjanlegu hamingju sem væri fólgin í því að heyra honum til. Og hún gat ekkert gert. Ef hann hefði aðeins sPurt um álit hennar, ef hann hefði látið hana ráða ... en það hafði hann ekki gert. Hann hafði aðeins sagt ákveðna meiningu sína á slíkum hjónaböndum, og nú ætlaði hann sér að grundvalla vináttu þeirra í millum; aðeins vináttu. Með hverju andar- taki sem leið fannst henni hann fjarlægj- ast meira og meira. „Eigum við að fara eitthvað annað og dansa, eða eigum við að aka heim?“ spurði hann. „Sjálfan langar mig meira til að dansa.“ Þegar þau gengu inn í dansstaðinn, hittu þau fyrir hóp af ungu fólki, sem þau þekktu, og settust við borð þess. Stöku sinnum tók Britt eftir því, að hann virti hana fyrir sér yfir borðið með sama augna- ráðinu og fyrr um kvöldið, en hún þorði ekki lengur að treysta dómgreind sjálfrar sín. Þegar maður óskar sér einhvers af heilum huga, hættir manni til að álíta, að allt muni fara eins og maður vill. Loksins var kvöldið liðið og Torsten keyrði hana heim. í vingjarnlegum tón, eins og stóribróðir, ákvað hann að líta inn til hennar annaðkvöld. „Hugsazt getur, að einhver bíómynd verði á ferðinni, sem okkur þætti gaman að sjá,“ sagði hann. „Já,“ sagði hún; annað ekki. Löngu eftir að Britt var komin í rúmið, lá hún vakandi og gat hvorki grátið né hugsað skýrt, því hún vissi, að það var engin von lengur. Torsten hafði ákveðið að láta framtíðina vera í fullkominni ó- vissu. Og sjálf gat hún ekkert aðhafzt, nema því aðeins, að einhvers konar krafta- verk ætti sér stað, svo að honum snerist hugur. En eftir því sem dagarnir liðu, kom bet- ur og betur í ljós, að Torsten myndi ekki skipta um skoðun. Hann kom alltaf í heim- sókn til hennar á hverjum degi, en þau voru næstum aldrei ein saman. Kvöldun- um eyddu þau í félagsskap sameiginlegra kunningja, annað hvort í bíói eða á dans- stað. Britt var ljóst, að það bezta sem hún gæti gert væri að hætta að þekkja hann, en hún beinlínis gat það ekki, svo hún hélt áfram að fara út með honum eins og ekk- ert hefði í skorizt. Tíminn leið, og hvert sem þau fóru var Ruth Palmer alltaf í félagi með þeim. Hún hafði verið gift og átt um skeið heima í Stokkhólmi, en var komin heim aftur eftir skilnaðinn við manninn. Hún var mjög fögur, með stuttklippt hár og dökkrauðar HEIMILISBLAÐIÐ 235

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.