Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Síða 17

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Síða 17
Það var mikil stemmning í hópnum. Fjöldi af nýjum dansplötum var á fónin- um, og Ruth lét aldrei verða hlé á skemmt- uninni eða óþægilega þögn. Britt brosti og dansaði og hugsaði sem svo, að jafnvel þótt Torsten hefði verið staddur hinum megin á hnettinum, hefði hann ekki getað verið f jarlægari henni en hann var einmitt nú. Tunglið kom fram úr skýjunum. Ruth féll í fang Torsteni úti á svölunum og sagði: „Sjáðu, vinur, ég pantaði mánann sérstaklega handa þér!“ Svo hallaði hún höfðinu upp að öxl hans. En Britt dansaði á meðan við Robert Eriksson. Unz hún sleit sig allt í einu lausa frá honum og sagði: „Eigum við ekki að koma inn og fá okkur svolítið meira púns?“ Þau fóru inn og drukku púns. Skömmu síðar komu þau Torsten og Ruth inn líka. Ruth hellti púnsi í glas, dreypti á því og rétti það síðan að Torsten á meðan hún mændi á hann sínum grænu augum. Britt, sem sat í sófanum ásamt Robert, komst ekki hjá því að heyra, hvað þeim fór á milli. Ruth tók aftur við glasinu. „Þína skál!“ sagði hún blíðlega, tæmdi glasið, setti það frá sér og greip undir handlegg hans. „Ég kem niður að flotastöðinni og heimsæki þig,“ heyrði Britt hana segja. „Og þegar þú færð nokkurra daga orlof, hittumst við í Stokkhólmi og skoðum borgina saman.“ „Ljómandi,“ svaraði Torsten og brosti. Britt gat ekki heyrt, hvort hann meinti þetta, eða hvort hann var bara svona kurt- eis. Skyndilega fór um hana megn reiði- hríslingur. — Ruth Palmer ætlaði sér að heimsækja Torsten í flotastöðina; Ruth Palmer ætlaði sér að hitta hann í Stokk- hólmi! Og þessu var öllu ráðstafað eins og ekkert væri sjálfsagðara! „Þegar skipið þitt kemur að landi,“ hélt Ruth áfram, „stend ég áreiðanlega á bryggjunni og tek á móti þér.“ Já, einmitt, hugsaði Britt. Ruth ætlaði sér að vera þar reiðubúin til að taka á móti ungum og einmana manni, sem þráði að komast í land, — á meðan Britt væri sjálf kyrr heima í Lönköping og gréti augun þurr af sorg. Stúlkur eins og Ruth áttu víst auðvelt með að haga sér eins og þær gerðu. Þær gátu verið frjálslegar og uppáþrengjandi í senn, og öllum fannst sjálfsagt, að þær höguðu sér þannig. Þær áttu hvorki til stolt né sjálfsvirðingu, en notuðu sérstaka veiðiaðferð sem var síður en svo út í blá- inn. „Eigum við að dansa?“ spurði Ruth, og síðan dönsuðu þau saman, Torsten og hún. Gremja Britt þróaðist upp í miskunnar- lausa ákvörðun. „Enginn maður hefur rétt til að gera slíkt,“ hafði Torsten sagt. „Binda við sig unga stúlku og þjóta svo á burt frá henni.“ Og á meðan hafði hún setið kyrr og ráðalaus, stolt og þó bros- andi eins og ekkert væri. Síðan hafði Ruth komið í spilið. Hún var ein þeirra kvenna, sem karlmenn skemmta sér með. Torsten myndi ekki sjá við gildrunni fyrr en það væri of seint. En hvers virði var stoltið, ef maður missti þann eina, sem maður gat hugsað sér að elska? Hvers vegna gat Britt ekki leikið sama leikinn á jafn glæsilegan og áhrifaríkan hátt og Ruth? „Þú ert fjarska þögul í kvöld, Britt,“ sagði Robert. Hún brosti í senn vandræðalega og kurt- eislega. „Ég er með höfuðverk,“ svaraði hún, „en reyndar er mér að skána, og ég hef hugsað mér að skemmta mér það sem eftir er.“ Hún tók fram púðurdósina sína og púðraði sig, auk þess sem hún lagaði til varalitinn. Síðan lét hún smella í tösku- lásnum um leið og hún lét hlutina niður aftur. „Bless á meðan,“ sagði hún við Ro- bert fyrirvaralaust og gekk rakleitt þang- að sem Torsten og Ruth voru. „Eigum við að dansa, Torsten?“ spurði hún glaðlega. Það kom skrítinn svipur á Ruth, en hún neyddist til að draga sig í hlé. Britt og Torsten luku við dansinn, en þegar þau voru hálfnuð út af dansgólfinu, sagði hún: „Komum út fyrir og virðum fyrir okkur karlinn í tunglinu sem snöggvast." Þau voru ein úti í garðinum, og máninn var óvenju bjartur. Britt skyggndist um og hló við. „Það er engu líkara en hann hafi verið pantaður sérstaklega handa okk- ur, sem erum að kveðja Lönköping,“ sagði HEIMILISBLAÐIÐ 237

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.