Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 19

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 19
‘pakklœti rauðskinnans Barnasaga eftir Axel Bræmer. Reiðilegur rymjandi, sem breyttist í lágt baul, ómaði gegnum eyðiskóginn. Síðan heyrðist hjartaskerandi angistaróp úr mannsbarka. — Hraustur, amerískur sonur eins landnemans, Bob að nafni, greip í handlegg föður síns, veiðimannsins John Thomsons. „Hvað var þetta?“ spurði hann spenntur. „Skógarbjörn,“ svaraði veiðimaðurinn stuttlega, „og hann hlýtur að hafa ráðizt á einhvern.“ „Við verðum að koma til hjálpar,“ hróp- aði Bob upp. „Að sjálfsögðu,“ svaraði veiðimaðurinn, sem þegar í stað hafði tekið byssu sína af öxl sér og var reiðubúinn að skjóta. Bob hafði einnig litlu Winchester-byssuna sína tilbúna. Þeir fóru svo hratt sem þeir gátu gegnum skóginn í áttina þangað sem hljóð- ið kom. Þeir feðgarnir voru á veiðum í Rocky-skógunum, kletta-skóglendi, ekki langt frá bjálkakofanum þar sem þeir áttu heima. Á nokkrum mínútum náðu þeir fram að rjóðri einu og námu þar staðar, undrun slegnir. 1 rjóðrinu miðju stóð há- vaxinn skógarbjörn á afturfótunum. Fram- hrammana hafði hann vafið utan um Indí- ánadreng og þrýsti honum að sér með öfl- ugu og lífshættulegu taki. Drengurinn hafði aðeins langan, gljáandi Bowie-hníf að vopni, og hann lét hnífinn dynja á þykkum feldi bjarnarins hvað eftir annað. En smá- vægilegar skeinurnar, sem hann veitti dýr- inu á þennan hátt, virtust aðeins auka á grimmdaræði þess. „Rauðbjörn,“ tautaði Johnson og mund- aði riffil sinn. En hann hugsaði málið bet- ur og lét riffilinn síga. „Ég gæti alveg eins hæft drenginn eins og björninn," mælti hann. „Það er varla hægt að bjarga hon- um úr því sem komið er. Og svo er hann líka bara Indíáni.“ „Rauður eða hvítur, það er sama,“ hróp- aði Bob. „Hann er þó mannvera! Ég ætla að gera eina tilraun." Hann bar byssuskeftið upp að andlitinu. Winchester-byssan gall við, og skyndilega hneig björninn saman. Hann veltist um, nokkrum sinnum, og síðan lá hann afvelta, að hálfu leyti ofan á rauðskinnanum. Hann var dauður. „Bravó, Bob!“ hrópaði veiðimaðurinn upp og skálmaði í átt til dýrsins. „Þetta var meistaraskot! Þú hæfðir hann beint í augað. En líklega er rauðskinninn dauður líka.“ „Nei, pabbi,“ svaraði Bob. „Það hefur bara liðið yfir hann.“ „Já ég sé það núna. En hann hefur þó særzt illa. Hvað eigum við að gera við vesalings piltinn?“ „Við verðum að bera hann heim til okk- ar,“ svaraði Bob. Þeir útbjuggu börur úr trjágreinum og fluttu hinn meðvitundarlausa dreng heim í bjálkakofann, þar sem kona veiðimanns- HEIMILISBLAÐIÐ 239

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.