Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 20

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 20
ins tók við honum og annaðist hann af móðurlegri nærfærni. „Þetta er Cheyenne-Indíáni,“ sagði veiði- maðurinn, „en þeir eru einna herskáastir allra Indíána, einkum eftir að þeir fóru að leggja lag sitt við Sioux-Indíánana, sem hafa „Sitjandi Naut“ að höfðingja sínum. En við skulum gera skyldu okkar sem manneskjur, enda þótt við fáum varla nokkra umbun fyrir það.“ Svo virtist sem veiðimanninum ætlaði að verða að orðum sínum. Það eina, sem þau fengu út úr Indíánadrengnum, var það, að hann héti Wakonda — „Arnarkló“ — og væri sonur hins fræga höfðingja „Gulu Handarinnar“. Ekki lét hann neinn þakk- lætisvott í ljós, og þegar sárin eftir hramma bjarndýrsins voru gróin, sem tók furðu skamman tíma, hvarf pilturinn fyr- irvaralaust úr bjálkakofa þeirra hjónanna. Brátt hafði veiðimannsfjölskyldan næst- um gleymt þessu atviki. Nýir og ekki alls- kostar skemmtilegir atburðir tóku hugann fanginn. Þetta var árið 1874, og gull hafði fundizt í svörtu fjöllunum á landamærum Suður-Dakota og Wyoming. Gullleitarmenn streymdu þangað, en um leið gengu þeir á rétt Sioux-Indíánanna, og þar með hófst hið mikla Indíána-stríð. Fjölmargir afskekktir og einmana bjálkakofar stóðu fyrirvaralaust í ljósum loga. Eina nóttina var röðin komin að kofa Thomsons. Sioux- og Cheyenne-Indíánar réðust á hann í sameiningu og komu bleik- nefjunum í opna skjöldu. Þeir höfðu í huga að setja eld í frumstæðan húsakostinn, en drógu þau hjónin og Bob litla með sér sem fanga heim í bækistöðvar sínar. Þar voru þau bundin og komið fyrir í tjaldi, en tveir sterklega málaðir Indíánar stóðu vörð fyrir utan. Það voru ekki glæsi- legar hugsanir sem skutu upp kollinum hjá vesalings föngunum. Þeir sáu ekki fram á annað en verða að líða píslarvættisdauða, bundnir upp við trésúlu. „Það er úti um okkur,“ stundi veiðimað- urinn og togaði árangurslaust í taumana, sem héldu honum föstum. „Svo lengi sem við lifum, eigum við von,“ svaraði Bob. „Það getur margt skeð enn.“ Faðir hans hristi höfuðið. Hann var bú- 240 inn að gefa upp alla von. í hönd fór nóttin. Varðmennirnir tveir fyrir utan tjaldið tóku starf sitt auðsjáanlega ekki of alvar- lega. Bleiknefirnir gátu heyrt hrotur þeirra inn í tjaldið. Kannski voru þeir búnir að fá skammtinn sinn af „eldvatninu", sem Sioux-Indíánarnir höfðu haft á brott með sér úr forðabúri bjálkakofans. En skyndi- lega heyrði Bob veikt skrjáfur. Andartaki síðar tók hann eftir því, að gat var stungið á tjaldið með beittum hníf, og rist á. Ein- hver kom inn og skar á f jötrana, sem héldu honum bundnum. „Rólegur, hvíti drengur,“ hvíslaði rödd í eyra hans. „Wakonda ætlar að frelsa þig.“ Þegar Indíánadrengurinn hafði leyst Bob, gekk hann til foreldra hans og skar á fjötra þeirra líka. Innan stundar voru þau öll þrjú laus og liðug. „Þessa leið,“ hvíslaði Wakonda og smaug út um rifuna sem hann hafði skorið í tjald- ið. Þau fylgdu á eftir honum, gætilega. Með ýtrustu varfærni leiddi hann þau gegnum bækistöðvar Indíánanna og út í skóginn. Þar nam hann staðar. „Farið í þessa átt,“ mælti hann og benti. „Þar hittið þið hvíta menn með vopn. Cust- er hershöfðingja, „Langa Ljósa Hárið“, sem er á leið hingað. En sláizt ekki í fylgd með honum, því hann er að vaða út í opinn dauðann.“ „Hvernig getum við þakkað þér, piltur minn?“ mælti Thomson hrærður. „Þú bjargar lífi okkar og færð áreiðanlega bágt fyrir.“ „Ekkert að þakka,“ svaraði Indíána- drengurinn hreykinn. „Þið eruð óvinir. En þið hafið bjargað mér frá bjarndýri í skóginum. Því getur Wakonda ekki gleymt. Þið hafið hjúkrað mér. Ég hef frelsað ykk- ur. Þá erum við kvitt.“ Að svo mæltu hneigði hann höfuðið lítil- lega og var horfinn inn í skóginn. Þremenningarnir gengu nú í þá átt, sem hann hafði sagt þeim, og viti menn: innan skamms rákust þau á ameríska herbæki- stöð. Þaðan héldu þau áfram heim til sín. Stuttu síðar heyrðu þau fréttina um mann- fallið í her Custers, þar sem Sioux- og Cheyenne-Indíánarnir höfðu eytt 775 manna herliði, er reynt hafði að ráða niður- HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.