Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 21

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 21
Frá töfrabrögðum til lækníslyfja Þegar þið smyrjið kaldar hendurnar með feiti eða berið smyrsl á brunasár á fingri, verður ykkur sennilega ekki hugsað til þess, að þá eruð þið að framkvæma athöfn, sem heiðnir forfeður okkar í grárri forn- eskju myndu hafa kallað fórn. í hvert sinn sem forfeður okkar söfnuðust á þeirri tíð kringum fórnarbálið, þar sem fórnað var svínum og stundum mönnum til heiðurs æðri máttarvöldum, var fita sú sem af fórninni draup mjög mikið eftirsótt, því álitið var, að hún byggi yfir töframætti, sem læknað gæti alla sjúkdóma. Menn sóttust því eftir að safna blótfeitinni og smyrja sig með henni. Nú á dögum hefur fita og alls konar olía miklu hlutverki að gegna í læknisfræðileg- um tilgangi. Það hefur sem sagt verið ein- hver kjarni af sannleika í þeim töframætti, sem forfeður vorir tileinkuðu þessum efn- lögum „Sitjandi Nauts“ í bækistöðvum hans. Ósigur Custers hershöfðingja þýddi það, að herförin gegn Indíánunum endaði með algjörum ósigri. Indíánahöfðingjarnir höfðu með fullkominni herkænsku og tækni unnið sigur á hinum hvíta óvini sínum, sem varð að hopa undan og viðurkenna ósigur sinn í þetta skiptið. „Rauðskinnarnir eru villtari en dýr,“ mælti veiðimaðurinn, og það fór hrollur um hann. „En eitthvað gott er samt í þeim sum- um,“ mælti Bob. „Annars sætum við ekki hér núna.“ Það hlaut faðir hans að viðurkenna. Síð- ar frétti hann, að hinn nafntogaði Vísunda- Billi hefði fellt höfðingjann „Gulu Hönd“ 1 hroðalegu einvígi. En hvað um Wakonda varð, vissi Bob aldrei, hvorki fyrr né síðar. um. Og líkt og farið hefur fyrir blótfeit- inni, hefur ýmislegt annað af svipuðu tagi öðlazt þann sess, að vísindin hafa viður- kennt það sem læknislyf. Hvað þetta snert- ir má jafnvel segja, að töfrarnir hafi ver- ið undanfari læknislistarinnar. Töfra- og verndargripir ýmiss konar, sem litaðar þjóðir og Evrópumenn á mið- öldum töldu hafa dularfullan lækningamátt og verndarorku, hafa í ríkum mæli stuðlað að þessari þróun. Gripir þessir gátu verið hvað sem verkast vildi, allt frá mistilteini upp í dauða köngurló. Og þar sem eigandi slíks grips trúði einlæglega á lækningamátt hans, var sú hugmynd all-nærliggjandi, að máttur hans yrði enn áhrifameiri, ef hann væri étinn, í stað þess að bera hann aðeins um hálsinn. Þegar sjúkur maður át töfragripinn sinn, gerði það yfirleitt hvorki til né frá — það var aðeins örsjaldan sem slíkur gripur var banvænn í eðli sínu. En fyrir kom, kannski alveg eins sjaldan, að gripurinn var einmitt úr því efni, sem gat reynzt hafa heillavænleg áhrif á sjúkdóminn. Þeg- ar slíkt kom fyrir, komst viðeigandi töfra- gripur að sjálfsögðu í geysimikið álit, og smám saman þróaðist notkun hans upp í almennt viðurkennt húsráð. Loks kom sá tími, að sjálf vísindin gátu sannað, að efni þetta mátti nota til lyfjagerðar. Dæmi um þetta er leið köngurlóarinnar inn í lyfjafræðina. í gamla daga var lif- andi köngurló borin innan í valhnotuskurn sem töfralyf móti köldusótt. Einhver fann upp á því að gleypa köngurlóna, og það varð aftur til þess, að dauðar köngurlær urðu vinsælt lyf meðal almennings við hvers kyns krankleika. Sömuleiðis var vef- urinn notaður, einkum til að stöðva blóð- straum. Duft, sem búið var til úr köngur- lóm og köngurlóarvef, var selt sem alls- herjar-bótalyf öldum saman. Síðan kom tímabil, þar sem læknisdómar af þessu tagi þóttu hégómi einn. En fyrir tæpri öld fékk köngurlóarvefurinn uppreisn æru sinnar: Vísindin komust að þeirri niður- stöðu, að í honum fyrirfinnst efnið arachn- idin, sem hefur mjög heilsubætandi áhrif í vissum tilfellum. Maurflugur þóttu einnig hafa til að bera Heimilisblaðið 241

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.