Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 22

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 22
yfirnáttúrulegan kraft í forneskju og voru notaðar við hverju sem var, allt frá heyrn- arleysi til geðveiki. Cheyenne-Indíánar álitu eitur maurflugunnar gott við leti og ómennsku, og Frakkar notuðu soðna maura við gigt. Og ekki er þetta alveg út í blá- inn. Á síðari árum hefur verið notazt við sama eiturefni og fyrirfinnst í maurum, til að lækna ýmsa gigtarsjúkdóma. Læknar miðaldanna auglýstu stórvængj- aðar maurflugur sem sérlega góðar til að vekja mönnum ástarmátt. Fáeinir dropar af maurablóði í glasi af góðu víni áttu að fá ástina til að standa í ljósum logum. Nú á dögum er notað svokallað maura-Alde- hyd sem taugastillandi meðal — betur til þess fallið að hressa menn við eftir óham- ingjusamar ástir en beinlínis til að vekja ástarþrá. En annars voru læknisráð mið- aldanna alls ekki eins óþægileg og ætla mætti af sumu því, sem hér hefur verið sagt. Hvað segið þið t. d. um ráðið við kirtlaveiki? Ráðið var þetta: Kyssið sjö hreinar meyjar, dætur sömu móður, sjö daga í röð. Hin forna aðferð Indverja til að lækna slöngubit: að gefa fórnarlambinu slöngu- eitur, er nú viðurkennt af vísindunum. Indverska stjórnin hefur eytt milljónum í það að rannsaka önnur læknisráð hinna frumstæðu íbúa landsins vísindalega. Flest þau, sem að gagni máttu koma, voru þó þegar þekkt af vísindamönnum. Undan- tekning var samt hinn mjúki, ryðbrúni börkur indverskrar trjátegundar, sem nefnist Kurchee; almenningur notaði börk- inn sem meðal við blóðsótt. En til eru samt enn betri lyf við þeim sjúkdómi. f Kína hefur einnig verið notazt við svo- kölluð töfralyf af frumstæðu tagi. Eitt þeirra var planta, sem innihélt efnið ephedrin, en það hefur nokkuð lík áhrif og adrenálin. Forn kínversk læknislist var, þrátt fyrir allan umbúnaðinn og tilstandið, grundvölluð á heilbrigðri lífeðlisfræði. Þeg- ar kínverskur læknir ráðlagði sjúklingi að gleypa þurrkaða bjarnargallblöðru, þurrk- að dýrsblóð, steyttar hundstennur eða þurr skordýr, þá var þar ekki um að ræða lyf sem engin áhrif höfðu. Bjarnargallblöðrur hafa örvandi áhrif á gallblöðrur manna; 242 þurrt dýrsblóð inniheldur mikið af járni í mjög samþjöppuðu formi; steyttar hundstennur veittu ófrískum konum auk- inn skammt af kalki, sem þær þörfnuðust, og ýmis þurrkuð skordýr gátu gefið frá sér efni, sem höfðu örvandi áhrif á starf- semi hjartans. Sígaunar báru gott skynbragð á að búa til læknislyf, sem þeir umluktu mikilli dul og létu þá vitneskju berast frá einni kyn- slóð til annarrar, án þess að vítt færi. Of háan blóðþrýsting læknuðu þeir með netl- um; gegn eksemi notuðu þeir vökva fram- leiddan úr birkiberki. Lungnakvef og ýmsa skylda sjúkdóma læknuðu þeir með kirsu- berjasýrópi; magakvalir með humli, og gigt með blöðum af asktré. Ýmsar af jurt- um þeim, er þeir notuðu, njóta mikillar virðingar í nútíma lyfjafræði. Yfirleitt eigum við mikið að þakka hjá- trú og kukli fornra tíma, hvort heldur sem þetta var um hönd haft af þeirrar tíðar prestum, töfralæknum miðaldanna, galdra- mönnum eða Sígaunum. Á Ploridaskaga í Bandaríkj- unum er sumar og sól á þess- um tíma árs og hitinn svo mikill, að fólk vill helzt vera í skugga. Þessi unga stúlka hefur náð sér í stórt laufblað til að skýla sér með. heimilisblaðip

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.