Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Síða 25

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Síða 25
13. Þegar Harley haföi horft upp á Elísu komast klakklaust yfir um, þaut hann inn í ferjukrána. Þar var hann svo heppinn að rekast á tvo þrælaveiðara, menn sem gegn þóknun leituðu uppi og handtóku strokuþræla. 14.. Hann tók þá í sína þjónustu, mælti fyrir um, hvernig leitinni skyldi hagað; kvaðst nauðsynlega þurfa að ná í drenginn og útskýrði fyrir þeim hvar hann hefði misst af honum. Þeir þinguðu um launin fyrir ómakið, og Harley varð að láta af hendi drjúgan skild- ing, auk þess sem þrælaveiðararnir fyrirhuguðu að selja Elísu í New Orleans, þar sem fagrar þrælakonur voru í háu verði, og siðan ætluðu þeir að hirða þann ágóða sjálfir. 15. Gegnblaut og örþreytt höfðu þau Elísa og sonur hennar komizt að stórum bóndabæ, þar sem tekið var vei á móti þeim og reynt að ylja ísköldum höndum þeirra og fótum. Bóndi og kona hans höfðu einmítt verið að ræða um nýju lögin, sem samþykkt höfðu verið i Ohio, þar sem bannað var að greiða götur þeirra þræla, sem flýðu yfir fljótið frá Kentucky. Þá hafði vinnustúlkan stungið höfðinu inn um gættina og beðið Þau að koma sem snöggvast fram í eldhús. 16. Þar sat þá Elísa og sagði sögu sína; hvemig hún hefði orðið að flýja til að bjarga syni sínum, og að nú væri hún elt uppi. Hjónin hlýddu hrærð á frásögn hennar, og ákveðið var að koma henni fyrir á öruggari stað strax þetta sama kvöld. X HEIMILISBLAÐIÐ 245

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.