Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 26

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 26
Hin 18 ára Toni Ann LeVier fer eflaust hraðast allra irngl- inga. Hún stjórnar nefnilega Starfighter TF-104G, sem flýgur með tvöföldum hraða hljóðsins. Faðir hennar er þó með í flugvélinni, en hann er tilraunaflugmaður við verk- smiðjurnar í Californíu, sem framieiða vélarnar. Hjarðsveinar i Basutalandi í hjarta Suður-Afríku flétta hatta úr grófum stráum sér til dægrastyttingar. Þeir setja metnað sinn í að hafa þá með sem fjölbreytilegustu mynztri og formi. Síðan eru þeir seldir ódýrt á ýmsum stöðum í land- inu. Á stað nokkrum í Bæjaralandi, þar sem umferðin er geysimik- il, hafa verið byggð göng imdir veginn, svo að bændurnir geta nú rekið nautpening sinn í haga án þess að þurfa að fara út í hættulega umferð. í London er sérstæður sauma- skóli, sem stofnaður var á tim- um Viktoríu drottningar. Á þriggja ára námskeiðum er nemendunum kenndur hinn vandasamasti saumaskapur og ísaiunur. Það er mjög eftirsótt að komast í þennan skóla og færri komast að en vilja. Þessi enska nunna var ein þeirra 36 kvenna frá Stóra-Bretlandi, sem fengu inngöngu í skólann þetta ár. Þessi einkennilega höggmynd er gjöf frá Frakklandi til Brasilíu, hinnar nýju höfuð- borgar Brasilíu. Hún er eftir franska málarann og mynd- höggvarann Ange Falchi, sem hér er að vinna að verki sínu, sem er 15 m á hæð og vegur 5000 kg. Þaö eru ekki margir, sem geta státað af slíkri veiði sem þess- ari. Þessi túnfiskur er veiddur úti fyrir strönd Rhode Island og vegur 270 kg. Þessi túnfisk- ur mun vera sá stærsti, sem veiðst hefur undan ströndum Ameríku. 246 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.