Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 28

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 28
STÚLKA Á FLÓTTA FRAMHALDSSAGA Við venjulegar aðstæður hefði Henry haft í fullu tré við Nick, af því að hann var miklu stærri. Glæpamaðurinn var lítill og rindilslegur, þótt hann væri vöðvastæltur og þéttur fyrir. En nú var allt Henry í óhag. f fyrsta lagi var hann enn veikburða eftir innspýtinguna og yfirliðið síðar, og í öðru lagi varð honum ekki ljóst, fyrr en um seinan, að hér var ekki barizt eftir neinum leikreglum. Það var nú eitthvað annað. Það var sama sem sjálfsmorð að sýna einhverja tillitssemi, og þó kom það Henry á óvart, þegar hann varð var við, að þorparinn var að leita að augum hans með fingrunum til að þrýsta þeim inn. Henry tókst að varpa Nick af sér, en þá var hann strax magnþrota. Hann greip andann á lofti, og tök hans á vöðvastæltum handleggjum Nicks linuðust. En einu var hann þó feginn: Nick hafði orðið að láta skammbyssuna falla, af því að hann hafði gripið til augna Henrys með báðum hönd- um. Þeir blésu og stundu báðir eins og villi- dýr í áflogunum. Vínþefurinn úr vitum Nicks ætlaði alveg að kæfa Henry. Ýmist var Nick ofan á eða Henry. Þegar Henry gat, reyndi hann að koma hnefahöggi á oddmjóa höku þorparans. Þegar það hafði engin áhrif, þá lét Henry allar regl- ur lönd og leið og þreif gleraugun af Nick. Það var í sjálfu sér dularfullt, hve lengi þau höfðu tollað, en þorparinn varð órór við missi þeirra, einkum af því að Henry gat fylgt þessum litla sigri eftir með því að slá hausnum á Nick utan í vegginn. Henry gat líka komið á hann höggum, en svo náði Nick undirtökunum að nýju. Augljóst var, að Nick hafði aðeins eitt í huga: að kreista líftóruna út úr Henry. Og Henry átti brátt í miklum örðugleikum, þrátt fyrir örvæntingarfulla mótspyrnu. Ekki varð það betra, þegar hann varð var við, að langir og fallegir fótleggir Gabyar flæktust fyrir þeim. Henry sá í svip, hve fagurlega þeir voru skapaðir, og þann smekk stúlkunnar að velja sér undirföt af léttasta tagi. Hún var horfin á næsta auga- bragði, og Henry sortnaði fyrir augum, þegar Nick þreif í hár hans, dró hann að sér og setti hnéð upp undir hökuna. Þetta var svo mikið högg,'að Henry lá við yfirliði. í nokkrar sekúndur var hann aftur ofan á Nick eins og ódrepandi ljón, en svo dró úr kröftum hans og höggin urðu máttlaus. Henry gat ekki haldið út í fimm sekúndur til viðbótar, en hann þurfti þess ekki heldur. Hann heyrði lágvært skot í sjálfvirkri byssu með hljóðdeyfi, og það í annað sinn þetta sama kvöld. Þorparinn litli féll saman. Kúlan hafði farið gegnum gagnaugað, en Gaby stóð hjá reikul í spori og horfði á. Andartak ríkti dauðakyrrð. Þá féll stúlkan á gólfið og stundi af hryllingi. Henry reyndi að hugga hana eins og bezt hann kunni, þegar hann gat staðið upp. Hann tók byssuna af henni, lagði handlegginn um axlir hennar og gat látið hana setjast á rúmið. Þau voru bæði dösuð, og Henry var auk þess særður og náttföt hans sundurrifin. Sama var að segja um fallega hjúkrunar- búninginn hennar. Hún var náföl og sagð- ist mundu kasta upp. Henry var fyrst í hug að sýna henni vorkunnsemi, en ákvað svo að breyta um aðferð, því að hann vildi ura- fram allt fá að vita, hvað nú tæki við. „Ljúkið þá af uppsölunni," sagði hann hranalega. „Við getum ekki verið hér miklu lengur.“ „Þér gátuð ekki annað gert,“ sagði Henry hughreystandi, og hann mælti af heilum hug. Hefði hún ekki gert út af við Nick, þá hefði Henry áreiðanlega legiS dauður á gólfinu. 248 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.