Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 30

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Page 30
kolli til samþykkis. „Já, það er einn af for- sprökkunum hjá heilbrigðiseftirlitinu, sem kemur á ólíklegustu tímum. Hann er líka fjarska forvitinn." „Fyrirtak! Fyrst hringið þér í lækninn og segið honum, að ég hafi verið að kála Nick. Þér segið nákvæmlega frá öllum viðburðum, að því undanskildu, að þér segið, að ég hafi banað honum en ekki þér. Svo segið þér honum, að þetta þefdýr frá heilbrigðiseftirlitinu hafi boðað komu sína á morgun — og svo stingið þér upp á því að koma líkinu út úr húsinu, áður en þessi fulltrúi komi. Haldið þér, að hann gíni við þessari beitu?“ „Já, hvers vegna ekki það? Honum fynd- ist það sannarlega óþægilegt að hafa Nick hér liðið lík, þegar heilbrigðiseftirlitið er á ferðinni. En haldið þér, að það sé skyn- samlegt að segja, að þér hafið skotið Nick? Hefnir hann sín þá ekki á Alice?“ „Nei, þér hugsið ekki um það. Gerið eins og ég hef sagt Og svo eitt enn: Segið, að ég hafi vitneskju um, að þér hringið, og ég hafi neytt yður til þess að spyrja hann, hvort samningurinn okkar í milli sé enn í gildi. Segið aðeins þetta: „Bering vill fá að vita, hvort samningurinn er enn í fullu gildi.“ Getið þér munað þetta?“ Hún endurtók fyrirmæli hans, hagræddi fötum sínum, svo sem hægt var og fór út. Henry var að hugsa um það næstu tuttugu mínúturnar, meðan hann beið eftir henni, hvort hann gæti treyst henni, og hann komst að þeirri niðurstöðu, að hann ætti einskis annars úrkosta. Ef hún brygðist, var útséð um bráðan flótta, en allt virtist benda til, að hún væri honum hliðholl. Frásögn Gabyar gaf góðar vonir, og Henry var nú þeirrar skoðunar, að hann hefði heppnina með sér. „Læknirinn bað mig að segja yður, að samningurinn sé í fullu gildi. Ég á að losa mig við Nick eins snemma í fyrramálið og hægt er. Ég sagði, að Nugent frá heil- brigðiseftirlitinu kæmi um hádegið, og læknirinn sagðist ætla að reyna að vera kominn um þrjúleytið. Nugent fengi hér hádegisverð, og ég yrði að gera allt til að tefja fyrir honum, eins og hægt væri. Er þá ekki allt klappað og klárt?“ „Jú, en hvað sagði hann um fráfall Nicks?“ „Hann var dálítið afundinn út af því, en tók því samt með stillingu. Ég held, að einhverjir hafi verið í herberginu hjá hon- um, því að hann talaði svo lágt. Ég sagði honum frá öllu eins og þér óskuðuð eftir og lagði sérstaklega áherzlu á, að litli þorp- arinn hefði verið útúrdrukkinn og reynt að sýna yður í tvo heimana.“ „Það er heldur ekki fjarri sanni. En nú verðum við að snúa okkur að næsta atriði.“ „Já, en segið mér, um hvað f jallar samn- ingur yðar við dr. Paul? Eða má ég ekki vita það?“ Henry horfði rannsakandi á hana. „Það er mál, sem okkur varðar eina, dr. Paul og mig.“ Henry langaði ekki til að segja Gaby, að hann vildi fyrir alla muni komast burt á mánudag, því að hann óttaðist, að hún hugsaði aðeins um að bjarga sjálfri sér og léti hann eiga sig. En hún impraði ekki á því frekar Henry til nokkurrar furðu. „Það, sem hann hefur lofað, stendur fast. Að því leyti er dr. Paul riddaralegur! En segið mér nú, hvernig við komumst út. Ég fæ ekki séð, hvað Nugent hefur að segja í því máli.“ „Hann hefur heldur ekkert að segja. Hann var bara tylliástæða til að fjarlægja Nick. Þetta er annars ósköp einfalt. Náið í símaskrá og flettið upp á Jósef Cervales, útfararstjóra í Neuilly-sur-Seine. Nafn- spjaldinu hans er ég búinn að glata í öllu þessu umstangi síðustu dagana. Hann stendur á því fastara en fótunum, að ég hafi bjargað honum úr bráðri lífshættu. Þess vegna hefur hann lofað mér að gera mér greiða, hvenær sem ég kynni að hafa þörf á því, og nú er stundin komin. Segið, að þér hringið fyrir hr. Pierre Dupont. Og segið honum að koma með bíl, ég á við líkvagn, klukkan sex í fyrramálið." „Klukkan sex í fyrramálið? Hann geng- ur aldrei að því. Ekki einn einasti útfarar- stjóri mundi gera það.“ „Ég held hann geri það,“ sagði Henry. „Þér verðið að minnsta kosti að biðja hann um það og ef hann er með einhver and- mæli, minnið hann þá á það, sem átti sér 250 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.