Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 33

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 33
öxlum sér, og Henry sveiflaðist til og frá. Ekki var það nú þægilegt. Honum fannst sem ætti að fara að grafa hann lifandi. Það eina, sem var uppörvandi við þetta ferðalag, var að heyra fótatak líkmann- anna og stunur þeirra undir byrðinni. Allt í einu þagnaði fótatakið, og Henry var ljóst, að nú var farið um grasflötina. En nú kom allt í einu ljón á veginum. „Hvers konar fylking er þetta ?“ heyrðist sagt hrjúfri, hásri röddu, og Henry þekkti hana þegar í stað. Þetta var Sam, maður- inn í leðurúlpunni, sem hafði veitt honum eftirför í Neuilly. „Það tókst slysalega til!“ svaraði Gaby strax. „Svínið hann Bering skaut Nick í gærkveldi, og læknirinn hefur skipað svo fyrir, að við komum honum á burt, áður en Nugent frá heilbrigðiseftirlitinu kem- u.r.“ „Bering skaut Nick!“ Röddin lýsti megn- ustu vantrú. „Þetta' verð ég að heyra tvisvar!“ „Hefur þú ekki þvegið eyrun á þér í dag, Sam? Bering skaut Nick — myrti hann. Ertu búinn að skilja það?“ „Hvaða lygasögu ertu nú að japla á?“ „Jæja, hringdu þá til dr. Pauls, ef þú trúir mér ekki. Þú getur fundið símanúm- er hans í skrifbókinni, ef þú þá kannt að lesa. Líkið á að flytja burtu nú þegar, og hann sagði, að því færri sem vissu það því betra væri það. Sumum hættir til að tala of mikið.“ Orð hennar virtust hafa einhver áhrif, því að Sam glotti dálítið hikandi. „Jæja, ég er nú ekkert sorgbitinn yfir því! Mér finnst, að Bering ætti að fá verð- laun fyrir þessa dáð! En af hverju ertu svona spariklædd? Þú virðist frekar vera að fara í brúðkaup en til jarðarfarar. Þú ilmar eins og rósavöndur. Hver gætir Ber- ings á meðan?“ Gaby hló, og Henry gat ekki annað en dáðst að stillingu hennar. „Æ, hann fékk eina innspýtingu af því, sem hann gaf mér — sprautu númer sex — og hún er áhrifamest." „Já, en það er engin útskýring á útbún- aðinum á þér,“ sagði hann og var nú blíð- ari á manninn. „Til hvers ertu með þetta skinn ?“ „Hamingjan góða! En hvað þú ert for- vitinn! Þú vilt kannski vita líka í hverju ég er innan undir! Ég hef mínar fyrir- skipanir og fer eftir þeim. Ef þú gerðir það líka öðru hverju, þá gengi þér kannski stundum svolítið betur.“ Þetta var kannski ábending til hans um mistökin í Neuilly. Henry gat ekki annað en brosað, en hann óskaði þess, að Gaby losaði sig sem fyrst við Sam, því að nú var hann farið að klæja í nefið, og hann vissi, að hann hlyti bráðum að hnerra. Næstu sekúndur voru lengi að líða hjá Henry og tilfinningum hans er ekki hægt að lýsa. Hendurnar lágu með hliðunum og þeim gat hann ekki lyft upp að nefinu. Hann reyndi að lyfta sér dálítið upp og nudda nefinu við lokið, en það kom ekki að gagni. Hann gat ekki komizt að þeim stað, þar sem hann klæjaði. Svo reyndi hann að ná þangað með tungubroddinum, en tungan var ekki nógu löng til þess. Ástandið fór því versnandi. Hann vissi vel, að mælska Gabyar gat aldrei útskýrt, hvers vegna lík hnerrar. Henry leið allar verstu kvalir. Krampa- teygjur fóru um fingur hans og fætur. Tárin runnu niður eftir kinnum hans, með- an hann barðist við þörfina að hnerra. Og Gaby hélt áfram að tala eins og hún gæti haldið því áfram í heila viku. Hún sagðist fara heim til Nugent til þess að reyna að seinka komu hans á hælið, þangað til lækn- irinn væri kominn heim. Sagan var upp- spuni frá rótum, en hljómaði svo sann- færandi, að Henry var um það bil að trúa henni sjálfur. En á henni var einn galli. Hún var of löng. Henry skildi ekkert í því, að Jósef Cerv- ales og bróðir hans hefðu ekki sett kistuna niður, heldur héldu áfram að láta hana vega salt uppi á öxlunum. Stúlkukindin lét dæluna ganga, meðan Henry var í miklum vanda staddur. Loks linnti málæðinu, og líkmennirnir lötruðu aftur af stað. Henry fann, að kistan lenti á einhverju hörðu. Henni var ýtt til. Loksins var hún komin í líkvagninn. Heimilisblaðið 253

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.