Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 37

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Side 37
„Sumir nota kannski það orð, en ham- ingjan er eins og kunnugt er hliðholl þeim hugdjarfa,“ sagði hann. „En að hinu leyti er nokkur maður svo mikils virði, að menn afsali sér af frjálsum vilja þeim auði, sem er tíu sinnum meiri? Jæja, þar sem ekki er um það að ræða, að hún hljóti arfinn, þá hefur það atriði kannski lítið að segja. Samt sem áður verðum við að reikna með þeim möguleika. Hvað verður uppi á ten- ingnum, ef hún neitar að giftast yður?“ Henry yppti öxlum og reyndi að vera eins ákveðinn og hægt var. „Þér hljótið þó að geta deyft hana, svo að hún sé þess ekki meðvitandi, að hún sé að giftast. Ég segi yður það hreinskiln- islega, læknir, að ég er alveg að örvænta, og ég sé enga aðra leið út úr erfiðleikunum. Og hvað sem segja má um loforð yðar, læknir, þá get ég alls ekki þolað það, að hún verði lengi innilokuð. Ég sé heldur enga leið til þess, að hún fái arfinn.“ Læknirinn gaut á hann augunum, en Henry hélt áfram. „Ég hefði auðvitað getað farið til lög- reglunnar í dag í stað þess að fara hingað. En hvaða gagn væri af því? Hreint ekkert, heldur aðeins komið fréttinni um geðveiki hennar út á meðal manna. Sannleikurinn er sá, að við getum blátt áfram ekki komið í veg fyrir, að þér klófestið arfinn, og því beini ég því til yðar, að þér gerið það með því að heimila hjónaband í stað þess að nota geðveiki sem ástæðu til að hremma hann.“ Læknirinn leit rannsakandi á Henry. „Ég vildi vita, hvort yður er alvara með þessu,“ muldraði hann. „Ég vildi gjarnan trúa þessu, en ég er ekki sannfærður. Ég er hræddur um, að ég hafi ekki metið yður sem skyldi fram að þessu, og ég vil alls ekki gera sömu skyssu aftur. Segið mér, hvaða vernd þér hafið tryggt yður? Ef ég hringdi bjöllunni þarna, hefði ég þá ástæðu til að sjá eftir því?“ „Auðvitað hef ég gert allt til að tryggja sjálfan mig,“ svaraði Henry. „Ef þér sam- þykkið ekki áform mitt eða reynið að halda mér hér, þá leggur vinur minn, Mon- ier, til atlögu.“ Læknirinn nuddaði nefbroddinn með fingurgómunum. En Henry hélt áfram: „Fyrst í stað fær hann lögreglunni í hend- ur bréfið, sem þér senduð mér um daginn. Ég fann það, sem betur fór, þegar ég klæddi mig fyrir flóttann. Ég veit ekki, hvort rithönd yðar er á bréfinu, en lög- reglan og skiptaráðandinn hafa kannski áhuga á orðanna hljóðan í því, að ég tali ekki um heilbrigðisstjórnina og læknaráð- ið. Þar næst gerir hann sitt bezta til að fá eiðsvarna skýrslu frá Gaby Vallís, en hún getur áreiðanlega hjálpað okkur mik- ið, ef hún vildi.“ Henry þagnaði og horfði beint í augu dr. Pauls. „Og loks,“ hélt hann áfram, „fer Monier fram á úrskurð til að fá frænda Alicear grafinn upp til að fá skorið úr um dánar- orsökina. Þér einn vitið, hvort það getur borið nokkurn árangur." Læknirinn lét ekkert uppi um tilfinn- ingar sínar, heldur horfði fast í augu Henrys. „Þökk fyrir útskýringarnar," sagði hann loks. „Er um önnur skilyrði að ræða fyrir samþykki eða frávísun á kröfu yðar, af- sakið, ég á við tillögu yðar?“ „Hreinasta lítilræði," svaraði Henry. „Monier vill svo að eitthvað sé nefnt fá bíl- inn sinn aftur.“ „Sjálfsagt! Hann stendur í einum af bílskúrunum, og ég skal engrar leigu kref j- ast fyrir geymsluna á honum.“ „Gaby vill helzt fá fötin sín, og ég lof- aði að gera það fyrir hana, sem í mínu valdi væri. Þar að auki er spurningin um öryggi hennar sjálfrar! Hún lofar að þegja yfir leyndarmálum yðar, ef þér farið eins með hennar mál.“ „Þetta virðist sanngjarnt. Ég geng að yðar skilyrðum, hr. Bering, ef þér gangið að mínum. Ég set aðeins tvö skilyrði, og þau eru sanngjörn: Þegar þið Alice eruð gift, þá gerið þið hvorugt kröfu til arfs eftir frænda hennar.“ „Samþykkt.“ „Og hitt skilyrðið er, að þér leyfið mér að vera viðstaddur, þegar þér biðjið Alice- ar.“ (Framhald) HEIMILISBLAÐIÐ 257

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.