Heimilisblaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 22
Jimmy Page heitir þessi piltur
og leikur á gítar í dægurlaga-
Uljómsveit. Sérfræðingar i gítar-
leik álíta hann einn af þrem
beztu gitarleikurum vorra tíma.
Nokkrar sýningarstúlkur í París
eru að sýna þarna mexíkanskan
klæðnað, sem gert er ráð fyrir
að verði vortízkan í Evrópu.
Um þessar mundir stendur yfir
sýning í París á leir- og postu-
línslist Frakka frá liðnum öld-
um. Myndin er af vegg með
diskum, en upp við liann liefur
franska dansmærin Thalie Fru-
ges stillt sér, til að vekja meiri
athygli á veggnum.
Myndin er tekin á baðströnd-
inni við Nice á Miðjarðarliafs-
strönd Frakklands. Norðurálfu-
búar sækja mikið á þessar slóð-
ir vetrarmánuðina, því þá er
daglega sól og sumarveður þar
og hitinn á daginn frá 15—20
gráður, en á næturnar fer hann
niður í 6—8 gráður.
—>
Undir brúm Signu í París hafa
hinir allslausu umrenningar
borgarinnar lengi átt griðastað
á næturnar. Sé breyting hefur
þó orðið á kjörum þeirra, að ein
af líknarstofnunum borgarinn-
ar hefur nú opnað matstofu, þar
sem þeir geta fengið eina heita
máltíð á dag.
Myndin er tekin á Orlyflugvelli
í París, í tilefni af því að mað-
urinn var 500.000-asti farþegi
Air France á flugleiðinni milli
Lundúna og Parísar á síðustu 10
mánuðum.
-»
22
HEIMILISBLAÐIf)
i