Jólabókin - 24.12.1914, Page 6
Týnd jól - fundin jól.
Eftir Bjarna Jónsson.
AÐ er langur tími liðinn frá
því saga þessi gerðist. Jólin
voru í nánd árið 1792. Víða
um heiminn ríkti tilhlökkun
og í hjarta margra vakti bæn
um jólafrið og jólagleði. Úti á
Jótlandsheiði voru stundir dagsins tilbreyt-
ingalitlar, og þar bar þess vegna meir á
birtunni þegar jólin lcomu.
Sira Feld, prestur í Tyregod, bjó sig
undir' jólin og hann sá í huga sér þá, sem
mundu koma í kirkju á jólunum, og hann
langaði til þess að bera jólaljós til þeirra
allra á hinni miklu hátið. Á prestssetrinu
var mildl tilhlökkun og mikil umsvif, fólkið
vissi, að nú voru gleðidagar í vændum og
margar ánægjustundir, bjart ljós tendrað á
dimmum vetrarkvöldum.
Rn á prestssetrinu var lílill drengur, 9