Jólabókin - 24.12.1914, Blaðsíða 8

Jólabókin - 24.12.1914, Blaðsíða 8
8 í dag frelsari fæddur«. Svo kom hann heim úr kirkjunni og móðirin kysti litla dreng- inn sinn, hann lék sér við systkini sín og Malena gamla barnfóstra sagði þeim marg- ar fagrar sögur. En nú fékk hann ekki að fara heim. Jólin voru langt, langt í fjarlægð. Þegar hátiðin byrjaði og jólaguðspjallið var lesið, þá var litli drengurinn enn ekki búinn að finna jólin. Minningarnar kölluðu á huga hans og hann gat ekki tekið þátl i gleði þeirra, sem ekki þektu minningar hans. En jólin voi’u altaf að leita að honum. Hann var þögull og alvarlegui’, þó að allir aðx’ir væru brosandi. Það lá við, að hann fæi’i að gráta, en hann kærði sig ekki um að láta aði’a sjá tárin. Þá gekk hann út úr stofunni, út á hlaðið og áður en hann vissi, var hann kominn inn i fjár- húsiö. Þá greip viðkvæm hugsun litla drenginn og hinar blíðu jólahugsanir komust nú að í hjarta hans. Hann man svo vel eftir því öllu, sem foreldrar hans höfðu sagt hon- um um jólin, um jólabarnið, sem var vaíið reifum og lagt í jötu, og er hann lítur ó jötuna i fjárhúsinu, þá titra viðkvæmir strengir i sálu hans. Hann biður bæn sina þarna inni i fjárhúsinu og heilagur friður

x

Jólabókin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.