Jólabókin - 24.12.1914, Page 29

Jólabókin - 24.12.1914, Page 29
29 kjörgripur, sem eg yrði að geyma handa þér þangað til þú kynnir að meta hann og fleygðir honum ekki frá þér eins og óvita barn. Og nú var eins og þvi væri hvíslað að mér: gerirðu það ekki i dag, þá verður ef til vill aldrei af því. Vindblærinn, sem vanalega kemur um sólarlagsbil, fór nú ósýnilegri hendi um sýprusviðar-krónurnar og, all í einu varð svalt. Móðirin og dóttirin sátu hljóðar um stund, hvor með sínar hugsanir. — Jæja, þetta varð nú samt sem áður all-löng saga, sagði móðirin, — lengri en eg haíði hugsað. Míra min. Það var i rauninni þetta eina, sem eg vildi segja þér: Frelsari pinn hefir einu sinni sjálfur blessað þig, og þú hefir hvilt í örmum hans. Þvl finst mér sem við megum trúa því og iregsta, að honum þgki vœnt um þig. — En nú veit pabbi þinn víst ekki hvað orðið hefir af mér. Eg er sem sé ekki búin að ljúka dagsverkinu — og hænsnunum má eg þó ekki gleyma. Og svo fór móðirin heim, þessi góða kona, sem aldrei hugsaði sér annað, en að sér bæri að vinna baki brotnu fyrir öðrum, —■ hún, sem elskaði svo takmarkalaust, af því að hún í æsku hafði kynst konungi kær- leikans, sem henni fanst að hún fengi aldrei

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.