Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Blaðsíða 16
Kveðja,
llutt við útför Guðm. skálds Guðmundssonar.
Ó, þú meistari meistaranna í hvíta bræðralaginu, konungur
trúarbragðanna, Kristur. Vér lofum þig, vér tignum þig, vér
tilbiðjum þig. Dýrð sé þér að eilífu.
Meistarinn Ijúfl, leið þú oss frá táli,
lýs okkur veg með þínu kærleiksbáli.
Leið oss frá myrkri synda og sárra nauða,
send okkur líf í gegnum kaldan dauða.
1 alveg sérstökum tilgangi komum vér hér saman í dag,
í þessu húsi, sem sérstaklega er helgað meistaranum mikla,
sem vér væntum að bráðlega komi aftur til jarðarinnar.
Vér komum til þess að bera fram siðustu kveðjuna og
þakkirnar til eins félagsbróður vors i Guðspekisfélaginu, sem
jafnframt var formaður »Stjörnufélagsins«. Oft höfum vér áður
verið stödd með honum i þessu húsi, höfum notið andrikis
hans og þess kærleika og friðar, sem streymdi út frá hon-
um. Ásamt honum höfum vér hér rifjað upp það heit vort,
að helga líf vort og krafta eftir mætti þjónuslu meistarans.
Áreiðanlega kom okkur það á óvarl, að samvistin og sam-
vinnan varð ekki lengri en þetta. Vér höfðum vonað að hafa
hann á meðal vor enn um mörg ár, og njóta hans góðu
14