Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Síða 52
hvílir á, þá get ég ekki imyndað mér, að nokkur áheyrandi
hennar hafi farið svo út, að hann hafi ekki verið gagntekinn
af þessari sannleikselskandi, heiðvirðu og göfugu konu. En
ég ætla mér ekki að blanda hér saman boðskapnum og
þeim, er flutti hann. Eg vildi að eins óska, að ég gæti litið
hann frá sama sjónarmiði, sem hlýtur að liggja til grund-
vallar fyrir skoðunum hennar. Í’ví miður hef ég hvorki þá
þekkingu né hæfileika til brunns að bera, sem þarf til þess
að geta lagt nokkurn dóm á þá skoðun, er Mrs. Annie
Besant hefur á framþróunarskeiði mannkynsins, fortíð þess
og framtíð. Hún gerði snildarlega grein fyrir þessari skoðun
sinni í fyrirlestrunum og að því er sýnist, er hún reist á
sérstökum rannsóknarferðum, sem ég þekki ekki. Mrs. Annie
Besant segir t. d., að víðáttumikið meginland eða heimsálfa,
Atlantis, hafi sokkið í sjó í ómunatíð, þar sem nú er Atlanz-
haf. Orsökin voru afskapleg eldsumbrot. Hún mintist líka á
aðra álfu, sem á að hafa sokkið i sjó löngu áður en Atlantis
fórst; sú álfa var kölluð Lemúríulönd og var, þar sem nú er
Kyrrahaf. I3á segir hún, að hinar mörgu eldeyjar, sem koma
nú öðru hvoru upp suður í Kyrrahafi, séu byrjun þess, að
ný heimsálfa risi úr sjó, sem á fyrir sér að verða miðstöð
nýrrar heimsmenningar í sögu mannkynsins, að mörgum
árþúsundum liðnum. Annars er sem Mrs. Annie Besant geti
litið yfir geysimikil tímabil — milljónir ára.
Mrs. Annie Besant segir enn fremur, að nýr kynþáttur sé
að koma í ljós í Bandarikjunum. Segir hún, að hinir meiri
háttar þjóðfræðingar vestan hafs hafi skýrt stjórn Banda-
ríkjanna opinberlega frá árangrinum af athugunum sínum á
hinum nýju þjóðareinkennum, sem eru nú sem óðast að
koma þar í ljós. Þeir menn, sem eru fæddir með þessum
þjóðareinkennum, eru fríðir sýnum, eru gáfaðir menn og
50