Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Blaðsíða 42
hann kemur von bróðar, sem er ímynd hinnar guðdómlegu
vizku. Og hann kemur til þess að endurreisa launhelgarnar
fornu. Og ef þér leggið nú hönd á plóginn og vinnið, að
undirhúningnum, þá munuð þér vissulega njóla blessunar
af þeim, þegar þær eru endurrisnar. Nú gefst yður kostur á
að leita ljóssins, en síðar munu þér fá að bera það fram,
svo að það lýsi öðrum mönnum.
Og þér mannvinir, þér sem eruð vinir þeirra, er fara
halloka í barátlu lífsins, þér, sem finnið hvorki frið né ró,
sökum þess að þér vitið, að svo margir lifa huggunarsnauðu
hörmungarlífi og ætla að hníga andvarpandi undir örbirgðar-
farginu — þér fóið hér tækifæri til þess að ílytja sam-
bræðrum yðar þann mikla fagnaðarboðskap, að »bróðirinn
bezli og mannvinurinn mesti« kemur til vor, áður langt um
lfður. Og munið, að koma hans verður þjóðunum þeim mun
meira til blessunar, sem þér fáið unnið meira í þjónustu
hans — þjónustu kærleikans.
Viljið þér því ganga í lið með oss?
Pýtt liefur S. Kr. 1\
40