Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Síða 53
viljasterkir. Þeir eru upphaf nýs kynþáttar. Alt þetta sýnist
vera reist á þeim hlutum og rannsóknum, sem liggja fyrir
utan það verksvið, sem ég hefi valið mér og starfað á, alt til
þessa og þar af leiðandi finst mér, að ég sé ekki fær um að
leggja nokkurn dóm á athuganir hennar — hvorki til né frá.
Hins vegar vil ég áræða að gera eitt atriði i fyrirlestrum
hennar að umræðuefni mínu í dag, atriði, sem ég hef hinn
mesta áhuga á, og er það spádómur Mrs. Annie Besants.
Spádómur hennar varðar þá hluti, er ég hef lagt stund á,
hugsað um og trúi. Eg álít því, að ég sé fær um að segja
hér nokkur orð um þetta atriði.
Mrs. Annie Besant hefur vakið athygli manna á einu
atriði, sem ætti að vera stöðugt umhugsunarefni hvers krist-
ins manns. Hinar ílarlegu rannsóknir Mrs. Annie Besants
hafa leitt henni það í ljós, að mikill andlegur leiðtogi eða
mannkynsfræðari muni rísa upp með þjóðunum i náinni
framtíð. Hann mun, segir hún, varpa nýju ljósi yfir öll hin
meiri háttar trúarbrögð og sýna oss þau í sinum uppruna-
lega og óbrotna búningi. Hann mun fá svipt utan af þeim
öllu hinu mikla hýði hjátrúar og vanþekkingar, sem hefur
safnast utan um kjarna þeirra, eftir því sem aldir liðu. Það
var þessi boðskapur, er Mrs. Annie Besant flutti mönnum
með óviðjafnanlegri andagift i Queens Hall.1
1 Pað mætti og minna hér á spádóm þann, er Leo Tolstoy kom
fram með árið 1910, stuttu áður en hann hvarf að heiman og dó.
Dóttir lians hafði skrifað liann upp eftir honum og gaf hann út. í
honum segir meðal annars:
»Hið mikla veraldarbál byrjar sunnanverðu i Norðurálfu árið 1912.
Svo sc ég alla Norðurálfu í báli og blóði.-------Við endalok liinnar
miklu styrjaldar, hefst nýtt stjórnmálatímabil í hinum forna heimi. —
----Eftir 1925 sé ég breytingu í trúmálum.---------Pá rís upp mikill
51