Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Síða 94
4
Hann gaf sjálfan sig.1
Margt af þvi, sem yður finst nú óskiljanlegt, liggur í aug-
um uppi, þegar hin æðri vitund, hin guðræna vitund tekur
að glæðast hjá yður. Þá fáið þér og skilið, hvernig þrautirnar
og þjáningarnar verða til þess að göfga yður og hreinsa
hjarta yðar. Það er bæði vissara og veglegra að sætta sig við
þær hörmungar, sem að höndum bera, því að í þeim er þá
áreiðanlega fólgið fyrirheit um fullkomnun sálarinnar. Hafið
þér aldrei fundið hinn ömurlega tómleik og fánýti gleð-
innar? Eg segi yður, að það er ekki unt að fmna né þekkja
hinn sanna fögnuð — ekki vinnandi vegur að komast upp
á hátinda gleðinnar, fyr en þér hafið kafað viðlika djúpt
niður í hyldý'pi hörmunganna. Kvöl yðar er eldur málm-
bræðslumannsins (Mal. III, 2). Og það er hann, sem hreinsar
sorann úr yður, og er yður því til góðs en ekki til ills. Hin
1 Grein þessi er seinasti kailinn (lesson) í hinni yndislcgu bók:
Chrisl in You, þ. e. »Kristur í yður«. Pað liefur verið sagt um þá bók,
að liún væri mesta opinberun vorra tíma (the greatest revelation of
modern times). Ifún er rituð af ósýnilegum höfundi og er efalaust, eilt
liið fegursta trúarrit, er komið liefur fram »að handan«. Bókin fæst
hjá: Dodd, Mead and Company, New York.
92