Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Síða 68
fræðinginn Tycho Brahe; var Oddur biskup Einarsson einn
af lærisveinum hans og er sennilegt, að Oddur hafi verið
mjög vel að sér í stjörnuspeki.
Tilgangur stjörnuspekinnar er meðal annars sá, að sýna
fram á, að fullkomið og náið samband sé á milli alver-
unnar og mannsins, á milli hins stærra og minna, á milli
»Makrokosmos« og »Mikrokosmos«. Hún sýnir fram á, að
ákveðnar hreyfingar, sem gerast t. d. i sólkertinu, hafi til-
svarandi áhrif á lifið hér á jörðu og að sérstakar plánetu-
afstöður standi i nánu sambandi við tilsvarandi breytingar,
sem gerast í lifi einstakra manna og þjóða.
Þeir, sem vilja, geta lært þær aðferðir, sem nauðsynlegar
eru til þess að gera þessar athuganir og finna þetta sam-
ræmi og sannfærast um sannleiksgildi þess.
Og eins og gera má þessar athuganir með tilliti lil ein-
stakra manna og þjóða, eins má og gera þær með tillili til
mannkynsins í heild sinni.
Það er sú hlið stjörnuspekinnar, sem eftirfarandi greinar-
korn fjallar um.
Menn eru vanir að mæla timann i skemmri eða lengri
skeiðum, til þess að gera sér hann Ijósari og skiljanlegri og
leggja þann veg ákveðinn mælikvarða á tilveruna og lil'
hennar. (ierðu menn það ekki, mundi ókleift að skrásetja
viðburði liðinna alda og skipa þeim á réttan stað, svo menn
befðu þess full not. Lif manna hér í heimi er því að meslu
eða nálega öllu leyti háð mælingu timans.
Allir þekkja árstiðirnar: vetur, sumar, vor og haust, en þö
er ekki nándar nærri öllum kunnugt um það, af hverju
slik fyrirbrigði eiga sér stað.
Arstíðirnar myndast sem sé af möndulhalla jarðarinnar
66