Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 55

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 55
siðmenning hefur komið fram á sjónarsviðið. í5á hefur alt af risið upp guðmenni, er hefur leitt mennina með lífi sinu og kenningum inn á hinar nýju leiðir. Hún segir að Búddlia og Zaraþústra hafi v'erið slík guðmenni. Og guðmenni Vestur- landa var, segir hún, Jesús frá Nazaret, hann, sem vér þekkjum sem Krist, og hann lagði grundvöllinn undir hina nýju siðmenningu. Hún segir að Búddha liafi verið vizku- meistarinn, en Kristur kærleiksmeistarinn. Búddha fræddi menn um lögmálið, hið gæzkurika lögmál og hvatti menn til þess að láta stjórnast af heilbrigðri skynsemi og réttri hugsun; hins vegar kendi Kristur mönnunum að skoða kær- leikann sem uppfylling lögmáisins og finna guð. Það er kær- leiksmeistarinn, sem er mannkynsfræðari vorra tíma, segir Annie Besant, og hún er í engum vafa um, að hinn mikli mannkynsfræðari, sem hún væntir, sé sjálfur kærleiks- meistarinn. Bessi eftirtektarverði boðskapur var íluttur fjölda áheyr- endum og hafði gagnger áhrif á þá. Það er og ósk min og von, að hann megi einnig hrífa hug yðar og hjörtu. Mrs. Annie Besant ber einna mest kviðboga fyrir þvi, að vér munum ekki þekkja mannkynsfræðarann, er hann kemur, og aðallega sökum hleypidóma vorra og kærleiksskorts. Og afieiðingin gæli þá, ef til vill, orðið sú, að vér yrðum svo blindir, að viðtökurnar yrðu svipaðar hjá oss og þær urðu hjá Gyðingum forðum daga. Og það er sem hún hafi all- mikinn beyg af hinum rótgróna imugust, sem Norðurálfu- menn hafa á mönnum með annan hörundslit en vér, ímugust, sem varnar oss helzt til mikið frá þvi að meta rétt og viðurkenna það, sem göfugt er og dýrmætt með hinum austrænu þjóðum. Vér lítum, eins og kunnugt er, þá menn að jafnaði lítilsvirðingaraugum, sem eru ekki hvitir á hörund 53

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.