Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 77

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Side 77
er mannkynsfræðari í raun og veru og að hann hefur |)ess vegna ekki lálið sér nægja að fræða að eins fáeinar þjóðir um grundvallarsannindi tilverunnar né að eins fylgismenn einhverrar einnar trúar. Með hinum kristnu þjóðum er hann nefndur Kristur. En hann er einnig tignaður og lilbeðinn með öðrum þjóðum, er tilheyra öðrum trúarbrögðum. Austur í Indialöndum er þelta sama guðmenni tignað og gengur þar undir nafninu Shri Krishna og er það því nær sama heitið. Svo eru mörg önnur trúarbrögð, sem kenna fylgismönnum sinum að skoða hann sem fræðara sinn — eða þá fyrir- rennara hans. Því þegar að er gáð, hefur íleiri en eitt guð- menni haft hið andlega leiðtogastarf með höndum. IJau hafa tekið við hvert af öðru. En þau hafa hafl það svo lengi hvert um sig — árþúsund eftir árþúsund — að sá mann- kynsfræðarinn, sem nú er, svnist hafa hafl það frá því fyrst, að sögur hófust. En hvað sem því líður, þá skoðið þér meistarann Krist sem mannkynsfræðara, hann, sem myndin þessi er af, sem þér hafið hér frammi fyrir yður. Og þér álítið vafalaust, að hann liafi komið til jarðarinnar fyrir um nitján öldum. ()g þetta er rétt álitið; liann kom þá og kendi oss, mönnunum. En lífi hans lauk ekki með hinum likam- lega dauða. Því jafnvel þótt yður hafi verið kent, að hann hafi dáið, þá hefur yður einnig verið kent, að hann hafi risið upp aftur frá dauðum og stigið upp lil himins. Alt þetta eru likingarfrásagnir; en ég vil ekki eyða tima yðar í þetta sinn, í það að skýra frá hinni »innri« merkingu þessara hluta. En þér getið þó séð, að alt þetta bendir á, að vér eigum Krist fyrir lifandi konung og fylgjum ekki að eins fornri og andlegri söguhetju, sem lil'ði endur fyrir löngu. Og nú ællar Kristur, sem er konungur vor, að koma aftur til 75

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.