Kirkjuritið - 01.01.1942, Side 19

Kirkjuritið - 01.01.1942, Side 19
KirkjuritiS. E. M. J.: Ó, .Tesús Kristur, herra hár 13 Ó, drottinn Jesús, dýrð sé þér um daga’ og nætur allra tíma. Um þína tign oss tala ber á tungumálum allra lýða. Þótt stríð og róstur heimur heyi, og hrynji voldug ríkja-hákn, þitt heilagt krossmark haggast eigi, ið himinborna kærleikstákn á mannlífsvegi. Einar M. Jónsson. Ég íór til starfs. Langt var liðið á nótt, þegar við séra Ingólfur Þorvalds- son, sóknarprestur í Ólafsfirði, stigum á land í Grímsey. Það var þegar tekið að roða af hinni upprennandi hvíta- sunnusól. Presturinn var að koma til eyjarinnar til þess að messa þar á hátíðinni, en ég var að koma til sumar- dvalar. Okkur samdist svo, að við skyldum báðir prédika við messuna, hann fyrst og kynna mig á eftir söfnuðin- um, en ég síðan flytja aðkomuræðu mína. Þetta álcváðum við, er við vorum háttaðir í herbergi því, sem við fengum næturdvöl í á Miðgörðum í Grímsey. Um morguninn skrifaði svo séra Ingólfur messuboð og fékk unglinga til þess að bera þau á milli bæja — það er ekki langrar stundar verlc að kveðja söfnuðinn saman, því að vegalengdir eru ekki miklar. Eftir hádegi tók fóllc að streyma að, og innan skamms var kirkjan full. Ég hafði búist við þessu alt öðruvisi en raun varð á, lítilli kirkju- sókn og daufum söng. En þetta var á annan veg: Um alla kirkjuna tóku undir fjölmargar raddir karla og kvenna, ekki aðeins einraddað, heldur var einnig bassinn sunginn. Þetta er enn eftir af starfi séra Matthíasar Eggertssonar, sem hafði komið hér upp kórsöng í kirkjunni.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.