Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 30

Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 30
Okt.-Des. Messugjörð í Reykholtskirkju fyrir 70 árum. Allt frani \rfir 1870 héldust kirkjurækni og kirkjuferð- ir í sínu forna fari og a. m. k. litið breytt frá þvi, sem verið liafði öld eftir öld. Fólkið trúði þvi næstum und- antekningarlaust, að hver bókstafur Biblíunnar væri heilagur sannleikur. Sunnudagana bar öllum að halda lieilaga og rækja bæði húslestra og' kirkjuferðir, en vinna það eitt, sem ekki varð umflúið. Þessar venj- ur leyfðu sér þá fáir að brjóta nema í brýnustu nauð- syn. Aldrei var eins ánægjulegt fyrir sveitafólkið að sækja kirkju eins og um liásumarið. Þótt hey lægi hálfþurrt i flekkjum á sunnudögum, var það látið liggja óhreyft. Þótt vinnukappið væri látlaust alla virka daga, var ekki svo ánauðugt hjú, að því væri ælluð heyvinna á sunnudögum. Ef ekki var um forföll að ræða, bar öll- um heilög skylda að fara til sóknarkirkju sinnar þá daga, sem bar að messa. En liilt kom fyrir, að ungu fólki þótti það tilbreytingarlítið og hversdagslegt og þráði að sjá sig um i fleiri kirkjum. Af öllum borgfirzkum kirkj- um var í þá daga Reykholtskirkja mest sótl af utansókn- arfólki. Bar margt til þess, að svo var gert: Staðurinn fornfrægur, kirkjan í þéttbyggðri sveit, reiðvegir góðir að sumarlagi og auk þessa oftast afburða prestar á staðn- um. Þá voru og í sókninni i og með raddmenn í betra lagi, þótt nöfn þeirra flestra séu nú gleymd. Heyrði ég fyrst getið um frábæran söngmann í Beykholtssókn, er uppi var á síðari hluta 18. aldar. Var það Halldór Há- konarson, bóndi á Skáney. Halldór var ættaður frá Hurð- árbaki, albróðir Helgu, konu Jóns Þorvaldssonar í

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.