Kirkjuritið - 01.12.1944, Blaðsíða 45
Kirkjuritið. Messugjörð fyrir 70 árum.
283
10—16 ára og röðuðu sér meðfram stólbríkunum, piltar
sunnan megin, en stúlkur norðan megin. Því næst gekk
prestur fram úr kórnum, ávarpaði börnin ástúðlegum
orðum og' spurði svo hvert þeirra nokkurra spurninga
úr kveri eða biblíusögum. Að því loknu flutti hann af
munni frain áminningarræðu lil barnanna, sem hinir
eldri tileinkuðu sér líka. Þótt kirkjan væri troðfull af
fólki á ýmsum aldri, gat ekki lieitið, að nokkur hreyfði
legg eða lið allan tímann. Að þessu loknu gekk prestur
aftur fyrir altari, en forsöngvari hóf upp röddina á út-
göngusálminum, og nú söng prestur með. Var rödd lians
svo mikil, að það var líkast því, að liljómurinn í kirkj-
unni tvöfaldaðist við söng hans. Að sálminum loknum
birtist binn prúðmánnlegi öldungur, Jón Þorleifsson, í
kórdyrum og las bænina liátt og snjallt, en prestur á-
samt öllum söfnuðinum bændi sig á meðan. Að þvi
búnu sneri prestur sér fram og mælti: „Guð gefi ykkur
cllum góðar stundir í Jesú nafni“. Hringdi þá Gunnar
klukkunum, sem boðuðu nú messulok, en kórbændur
kepptust liver við annan að þakka presti fyrir kenning-
una með handabandi. Auk þeirra voru það aðeins kon-
ur, er sátu fremst i bekkjum, sem náðu að rétta presti
böndina um leið og'*hann gekk fram kirkjugólfið.
Þegar út úr kirkjunni kom, var það veröldin, sem
heimtaði sitl af orðum og athöfnum fólksins. Konur
fóru sinátt og smátt að hækka róminn, leiða saman
hörn sin og dæma um svipmót þeirra og ættareinkenni.
Bændur gengu til liesta sinna, skoðuðu gæðingsefni liver
hjá öðrum og dáðust að fimi þeirra og fjöri. Aðrir töl-
uðu um egg í ljáum, vinnubrögð kaupamanna, slægjur
og tíðarfar. Allar þessar athuganir og spjall manna á
milli fór fram undir beru lofti, því að fáir létu sér þá
til hugar koma að setjast inn og bíða eftir kaffi hjá
presti, enda var gestastofan lítil og rúmaði fáa. Þar tóku
sér sæti aðeins nokkrir ríkisbændur, sem eilllivert er-
indi áttu við prest. En að skipa sér við dyr í þeirri von,