Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 33

Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 33
KirJcjurítið. Messugjörð fyrir 70 árum. 271 flestir yngri menn með svokölluð „kaskeiti". Annars voru liöfuðföt af ýmsum gerðum og fóru misvel. Svo var og' um fatnað allan bæði á konum og körl- um. Sáust margir i Ijótum flíkum og illa sniðnum. En þótt allt, sem fólkið klæddist í, væri heimilisiðnaður frá rótum, mátti furðu gegna, hve sparifatavaðmál gátu oft verið fínleg og áferðarfalleg, en meiri missmíði urðu oft á fátasniði. Gátu þó margar konur, sem voru hag- ar og gæddar listasmekk, látið allt fara vel úr hendi. Höfuðbúnaður kvenna var þannig, að flestar hnýttu yf- ir sig klút eða sjali, en þær, sem fínni voru, notuðu dökkleita körfuhatta, skreytta með fjöðrum eða silki- höndum. Allar voru þær í reiðfötum, og sumar hnýttu mislitum trefli yfir hægri öxl og undir vinstri hönd. Atti það að auka á tignarsvip kvenna, þegar þær voru seztar í söðul. Vekringar voru þá helzt valdir sem söð- ulliestar, en brokkarar þóttu með öllu óhæfir. Mikið og fagurt hár var þá í allra augum eitt af því, sem konur mátti mest prýða. Var því öllum skylt að hakla þeirri náðargjöf vel til haga. Fagurlitar hárfléttur, sem huldu herðar og hak lcvenna, er þær voru seztar í söðul á glæsi- legum gæðingi, þótlu mikill fegurðarauki, ekki sízt, ef þar við bættist hýrlegt bros og hispurslaus framkoma.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.