Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 38

Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 38
27(5 Kristleifur Þprsteitisson: Okt.-Drs. Þá koni maður í kórdyr og las bænina liátt og snjallt. Var maður sá nokkuð við aldur, en þó beinvaxinn og liðugur í limaburði, meðalmaður á vöxt og svaraði sér vel, snyrtilega klæddur, og bar það með sér að vera nost- ursþrifinn. Meðal annars var hann flestum betur greidd- ur, þveginn og rakaður um munn og höku, en með snögg- klippt kragaskegg, hvitt fyrir bærum.. Var hann einn grábærður af kórbænduin að þessu sinni. Þelta var Jón Þorleifsson, bóndi á Kjalvararstöðum. Hann var prýði- lega skáldmæltur og ritaði fagra liönd og læsilega. Vil ég nú að nokkru lýsa öðru því fólki, sem í kirkj- unni var og helzt var áberandi á þeim líma. Við altarisborn norðanmegin sat nokkuð roskinn maður, í lægra meðallagi, grannvaxinn og fölleitur, dökkur á hár og skegg, með blátt og bogið nef, elcki fríð- ur sýnum, en vakti þó á sér eftirtekt og vissu um, að þarna væri karl, sem eilthvað væri i spunnið. Þetta var Gísli Eggertsson, bóndi á Stórakroppi. Hann var af nafnkenndari ættum en nokkur annar bóndi, sem þá var í sókninni. Faðir Gísla var séra Eggert í Stafliolti, sonur Bjarna Pálssonar landlæknis, en móðir séra Egg- erts og amma Gísla var dóttir Skúla landfógeta Magn- ússonar. Móðir Gisla var systir Vigfúsar sýslumanns á Hlíðarenda, föður Bjarna Tborarensens, amtmanns og liins þjóðkunna skálds. Voru þeir því systkinasynir Gísli og' Bjarni Thorarensen. Gísli var um skeið hreppstjóri Reykdæla. Hann var manna gestrisnastur og lét t. d. stóran tóbaksbauk liggja á stofuborði og rétti hann hverjum, sem liafa vildi, og gaf gestum sinum í staup- inu. Öll meðferð lians á víni var í hófi, og sást liann aklrei hreifur af víni. Hann var ágætur reiðmaður, ól liesta sina og allan fénað vel og var yfirleitt bæði bygg- inn og vinsæll. Hagur var hann vel, einkum á járn. Gisli bjó síðast á Giljum i Hálsasveit og dó þar um síð- ustu aldamót í hárri elli. Frá honum er engin ætt komin. V,ið kórstaf norðanmegin sat gildvaxinn maður,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.