Kirkjuritið - 01.12.1944, Side 61

Kirkjuritið - 01.12.1944, Side 61
Kirkjuritið. Hvað getur bjargað mennirigunni ? 299 getur flutt þær kenningar, sem Kristur Jjoðaði og úl- skýrt lögmál guðsrikisins fyrir þá, sem eyru liafa til að lievra og skilning lil að veita kenningunni viðtöku. En mennirnir verða sjálfir að vilja það. Kirkjan bind- ur engan á höndum og fótuni og flytur hann inn i guðshús til að reyna að frelsa hann þar. Hún liefir enga aðferð til að knýja þá lil að koma, nema fortölur, sem koma að litlu gagni þeim, sem eklci vilja á þær hlýða. Það var jafnvel takmarkaður hópur, sem fékkst til að hlýða á meistarann sjálfan, og skorti hann þó hvorki vizkuna né málsnilldina. Fræðimenn þeirra tíma sner- usl á móti honum, og allir vfirgáfu Iiann að lokum á krossinum. Sé það samt álit hinna vitrustu manna, að ekkerl neina trúin geti bjargað mannkyninu frá voða og eyði- leggingu, þá er það auðséð mál, að það er ekki á valdi prestanna einna, að sú björg geti tekizt. Það er harla mikið á valdi þeirra, sem utan við kirkjuna standa i orði eða á borði. Það er ekki sizt á valdi þeirra, sem standa álengdar og dæma og segja: Hví frelsið ])ið ekki heiminn ? Eins og Kristur sagði: Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, eins segir kirkja hans: Komið til mín, hlustið á þann áríðandi boðskap, sem ég hefi að flytja. Trúið honuiri! Breytið eftir honum og reynslan mun sanna yður, að kenningin er hjá Guði. Yður kann að virðast það fjarstæða, að hugsa meira um aðra en sjálfan sig, að bjóða vinstri vangann, sé mað- ur lostinn á þann hægri, að elska óvini sína og biðja fyrir þeim, sem hata mann og ofsækja. Yður kann að virðast ])að fjarri öllu lag'i, að launa beri illt með góðu <>g að sælla sé að gefa en þiggja o. s. frv. Þetta er alll andstætt eðlishvötum vorum. En væri ekki nógu gaman að reyna þetta og sjá, hver árangurinn verður? Vér höfum nú allt of lengi játað kristna trú, en lifað eftir lögmálum sjálfselskunnar oss til ógæfu og glöt-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.