Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 64

Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 64
Okl.-Des. ÍJrdráttur úr ræðu dr. Richards Beck, forseta Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi og fuil- trúa þeirra á lýðveldishátíðinni, er hann flutti á presta- stefnunni í sumar. Eftir að hafa látið í ljós ánægju sína yfir þvi að vera staddur á prestastefnunni og fá tækifæri til að ávarpa hana, þakkaði dr. Beck biskupinum, er hafði kynnt hann, hlý og fögur orð í sinn garð og íslendinga vestan hafs. Jafnframt tjáði dr. Beck presta- stéttinni íslenzku og kirkju landsins þakkir hjóðræknisfélagsins og Islendinga vestan hafs fyrir það að fá að njcta heimsóknai' biskupsins á liðnum vetri. Vék ræðumaður síðan að ferð biskups vestur um haf og taldi liana bæði hafa verið hina mestu sigurför, þjóðræknismálunum vestan hafs til mikils gagns og íslenzkn þjóð- inni til gagns og sæmdar út á við. Ilr. Beck þakkaði einnig Presta- félagi Islands, og formanni þess, Asmundi Guðmundssyni prófessor, bróðurlegar kveðjur til Þjóðræknisfélagsins á aldarfjórðungsal- mæli þess og annan góðhug í garð þess. Síðan flutti ræðumaður bréflegar kveðjur frá forystumönnum beggja kirkjufélaganna íslenzku vestan liafs og lýsti að nokkm fjölþættri og merkilegri starfsemi þeirra. Sagði liann, að sér, sem forseta Þjóðræknisfélagsins, væri sérstök ánægja að hafa verið trúað fyrir þesum kveðjum, þar sem kirkjan íslenzka vestra hefði verið og væri ennþá svo mikill þáttur í þjóðræknisstarfseminni. Komst hann svo að orði í því sambandi: ,,Trúrækni og þjóðrækni hafa verið vígðir og fastknýttir þættir í sögu íslendinga í Vestur- heimi; þeir myndu, margir hverir að minnsta kosti, taka heil- huga undir orð skáldsins: „Og allir þeir, sem Guði sínum gleyma, þeir glata fyrstir sinni þjóð.“ Eitt taldi ræðumaður sér þó þykja „hvað merkilegast, eftirtekt- arverðast og eftirbreytniverðast í sögu íslenzkrar kirkju í Vestur- heimi“, en það væri margþætt starfsemi leikmanna innan kirkju- félaganna íslenzku í landi þar. Rakti dr. Beck síðan all-nákvæmlega þátttöku íslenzkra leik-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.