Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 70

Kirkjuritið - 01.12.1944, Page 70
308 .íakob Jónsson: Okt.-Des. þess verður þó stranglega að gæla að gera það ekki á þann hátt, að það niðurlægi þau börn, sem miður befir tekizt. Þegar um viðkvæmustu spurningarnar er að ræða, liefi ég beðið börnin að svara þeim á sérstöku blaði eða jafn- vel í sendibréfi, til þess að vera ennþá vissari um, að þau færi ekki fleiri á milli. Af slíkum bréfum hefi ég lært mikið um dagana, og oft liefi ég séð eftir þeim i eldinn, en um það er ekki að fást. Þau mega ekki í ann- arra hendur komast að mér liðnum, fremur en lífs. Ef timi eða tækifæri er til, getur það verið mjög mikils virði, að börnin geri stil um námsefnið. (Sbr. bls. 59, 5. spurningu). Ýmsar athugasemdir kunna nú að lcoma fram, og vi! ég því leitast við að svara þeim helztu fyrir fram. Er þessi aðferð ekki allt of tímafrek? — Þetla fer auðvitað eftir því, hve mörg börnin eru. Ég miða við álíka fjölda og,liafður er í einni kennslustund í öðrum námsgi’einum í venjulegum barnaskóla. Þeir prestar, sem fleii’i börn hafa, vei’ða að sjálfsögðu að skipta börn- unum í liæfilega mai’ga hópa, ef þau eiga að liafa full not af kennslunni. Við megum helzt ekki gera í því efm mínni kröfur til hins kirkjulega skóla en gerðar eru lil barnaskólanna yfirleitt. Fá börnin ekki hjálp hjá foreldrum sínum til að svara spurningunum ? — Einstaka sinnum hefi ég oi'ðið þess var, að slík aðstoð liefir verið veitt, en helzt þar sem þörf var á lienni. En þegar svo stendur á, er ii sjálfu sér ekkert á móti því, að einhver samvinna sé milli heim- ilis og skóla um uppfræðslu barnsins. Eðlilegast er þó að hjálp foreldranna sé veitt í fullu samráði við prestinn. Loks gizka ég á, að einstöku manni kunni að þykja of mikið sett fyrir, ef heill kafli er tekinn fyrir í einu En þar sem flestir ritningakaflarnir eru sögui’, sem líka eru í Biblíusögunum, er þar í raun og veru um endur- lestur að í-æða. Sumar greinar korna fyrir oftar en einu sinni. Auk þess verður að gera ráð fýrir, að megin-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.