Kirkjuritið - 01.01.1951, Síða 56
54
KIRKJURITIÐ
blásnum mönnum. Vitnar hann þannig í fræði þeirra: „Því
að á níunda ári sendir Persefóne sédir þeirra, sem goldið
hafa henni fyrir gamlar yfirsjónir, aftur frá undirheimum
upp í Ijós sólarinnar, og þessir eru þeir, sem verða göfugir
konungar, voldugir menn og miklir að vizku og verða
nefndir guðdómlegar hetjur á seinni tímum.“
1 hinni frægu sögu um Er frá Pamfyliu í niðurlagi
Ríkisins, lætur Plató Er skýra frá Hadesarför sinni, og
segir hann þar frá því, hvernig sálunum er leyft að kjósa
hlutskipti sitt í næstu tilveru, áður en þær bergja á Óminn-
iselfi, og velja þær sér hlutskiptið allt eftir þroska sínum
úr höndum örlagagyðjunnar Lakesis, sem nefnd er „dóttir
nauðsynjarinnar". Er þetta í raun og veru eitt og hið
sama og hin indverska karmakenning.
Ekki veit ég, hvernig sr. Sigurbjörn getur fundið veru-
legan stuðning fyrir syndafallssögu Biblíunnar í þessum
endurholdgunarkenningum Platós, sem vafalaust eru
komnar úr indverskri dulfræði. En miklu skemmtilegra
og skynsamlegra finnst mér allt hugmyndaflug hans.
Hér er líka mikill munur á, hvernig Plató og hin ind-
verska dulfræði nota endurholdgunarkenningu sína: Menn-
irnir eru sendir aftur og aftur til jarðarinnar til að læra
og öðlast meiri og meiri fullkomnun, þangað til blekkingin
hefir ekki framar vald yfir þeim, og þeir eru orðnir hæfír
til að hverfa til æðri heimkynna.
Áherzlan er lögð á þroskann. Menn frelsast aðeins,
þegar þeir eru búnir að læra nógu mikið. 1 syndafallssögu
Biblíunnar er Jahve hins vegar látinn senda mennina til
jarðarinnar í refsingarskyni fyrir það, að þeir hafa löng'
un til að læra að þekkja greinarmun góðs og ills og eins
til að stía þeim frá lífsins tré, svo að þeir taki ekki upP
á því að eta af ávexti þess og verði þannig ódauðlegir
eins og Guð.
Annars vegar er örlagagyðjan sva örlát og umburðar-
lynd, að hún gefur mönnunum allt, sem þeir óska sér.
fullviss um það, að þeir muni reka sig á og læra af reynsl'