Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 90

Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 90
88 KIRKJURITIÐ En þótt mótinu væri slitið, hafði hin frábæra finnska gest- risni þó ekki sleppt tökum á fulltrúunum. Var nú keppzt um að bjóða þeim í ferðalög víðs vegar um nágrennið. Einn eftir annan risu Finnarnir á fætur og hvöttu fulltrúa að fylgja sér og sjá ýmsa fagra og söguríka staði. — Okkur var sérstaklega minnisstæð saga, er einn Finnanna sagði til að lýsa ágæti þess staðar, er hann mælti með. Hann mælti: „Ég get tekið mér í munn ummæli hjálpræðishermannsins, sem sagði: Ég hefí verið í Evrópu, ég hefi verið í Ameríku, og ég hefi líka verið í Asíu, Afríku, já, Ástralíu, já og mörgum öðrum heimsálfum, en hvergi er þó jafn gott að vera og í Hjálpræðishernum. — Ég get sagt: Enginn finnst slíkur staður og sá, sem ég mæli með.“ Ekki létum við þó freista okkar af svo kröftugri auglýsingu, heldur fórum í fremur fámennum hópi til kirkjuheimilisins Lárkkulla í Karis. Kirkjuheimilið, sem jafnframt er æskulýðs- skóli, var byggt skömmu eftir lok síðasta stríðs. M. Bonsdorff biskup í Borgo hefir einna mest unnið að stofnun heimilis þessa- Bonsdorff er maður á sjötugs aldri. Hann varð ungur biskup og hefir gegnt því embætti um þrjátíu ára skeið. Er Bonsdorff skáld gott og á nokkra sálma í sænsk-finnsku sálmabókinni- í Larkkulla var setið fram eftir kvöldi í glöðum og góðum félagsskap. Skiptust menn á að segja léttar og skemmtilegar sögur hver frá sínu heima. Flestar eru sögumar gleymdar, eins og oft vill verða, þegar mikið ber að í einu. Ein er þó eftir> sem er þess verð, að henni sé haldið til haga. — Eitt sinn kom biskup á vísitasíuferð til prests nokkurs. Hlýddi biskup Þar messu. Að guðsþjónustu lokinni ræddust þeir við, og bar Þa ýmislegt á góma. Meðal annars skýrði prestur svo frá, að hann hefði ætíð þann sið við ræðugerð, að skrifa svo sem helminS ræðunnar, en láta svo andann um hinn helminginn. „Þá verð ég að gefa yður það hrós,“ sagði biskup, „að þér prédikið ólík1 betur en andinn.“ — Háöldruðum manni, sem lítur yfir líf sitt, finnst það líkast stórri breiðu. Yfir öllu hvílir eins konar móða. Þó eru einstakir atburðir og atvik skýr og glögg, sem tindar, er gnæfa upp ur móðunni. Ef það ætti fyrir okkur að liggja að ná háum aldri, erum þess fullvissir, að hinir sólríku og hlýju ágústdagar, sem

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.