Kirkjuritið - 01.12.1958, Blaðsíða 12

Kirkjuritið - 01.12.1958, Blaðsíða 12
442 KIRKJURITIÐ Ammon — en svo hét hún þá — hellenistisk borg, þar sem mest bar á menningaráhrifum frá hinu aust-rómverska riki. Voldugt hringleikahús frá þessum tímum er að finna i miðri borginni; að öðru leyti hefir timans tönn eytt hinum fornu minjum, og borgin hefir nú á sér svipmót Vestur- landa. — Eftir miðdegisverð i Hótel Philadelfía var ekið af stað upp til Jerúsalem, en það er 120 km. vegarlengd. Myrkur var yfir og heitt í veðri, en húsin i Amman teygðu sig upp hlíðar og brekkur. „Hér er sum- arhöll Husseins konungs, hér vetrarhöll konungs" hrópa leiðsögumennirn- ir. En Hussein er ekki efst i huga okkar nú. Með ölLum býr mikil eftir- vænting. Stór og langþreyð stund fer senn að renna upp í lifi okkar. Við erum að koma til hinnar helgu borgar, Jerúsalem! Við ökum í gegnum Pereu og yfir Móabsfjöll og dapurlegar auðnir, sem frá er sagt i Biblíunni og talið er að hér hafi ljón eitt sinn átt heimkynni. Okkur er það vel Ijóst, að nú er haldið um forrtfrægar söguslóðir, leið ferðamanna frá austri til vesturs með úlfalda- og flutningalestir sinar. Hér er umhverfi, sem kynni frá mörgu og merkilegu að segja, mætti það mæla. — Við komum í JórdandaLinn og að ánni Jórdan, sem er um 50 metrar á breidd, vatnið gulleitt. Allir gengu yfir brt'ma á fljótinu helga, brúna, sem kennd er við Allenby hershöfðingja. 1 nokkurra kílómetra fjarlægð er Betania hin- um megin Jórdanar, þar sem Jóhannes skirði, austan við Dauðahafið einnig staðurinn, þar sem hann var hálshöggvinn. — Viðkoma í Jeríkó var í áætlun okkar, en fórst fyrir að þessu sinni. Jeríkó hin foma er rústir einar, en hin nýja Jerikó er borg með sigrænum hitabeltisgróðri, þar sem pálmatrén gnæfa hátt. Ég finn það, er ég stíg út úr bilnum við Allenbys-brúna, hjá ánni Jór- dan, að hitinn gerist alláleitinn. Er það sizt að undra, því að nú erum við 400 metra fyrir neðan sjávarmál. — Tunglið fer að lýsa, og umhverfið birtir hrikalegar kynjamyndir. Júdeuauðnin, mikilúðleg og ömurleg, er til beggja handa. Hér voru ræningjar fyrrum —- eitthvað kynni að vera hér óhreint enn — a. m. k. eru vopnaðir lögreglumenn í bilunum, okkur til trausts og halds. Einkennileg tilhugsun, að þessar ömurlegu auðnir skuli um regntimann verða grænar og litfagrar, ákjósanlegt beitiland fyrir hjarðir Jórdana. Enn eitt dæmi um undramátt regnsins, vatnsins i þessum löndum hita og sólar. Og svo kemur borgin á hæðunum í ljós, Jerúsalem, sem stendur 800 metrum fyrir ofan sjávarmál. Klukkan 9 um kvöldið gengur fylking þreyttra ferðalanga sína fyrstu göngu í Jerúsalem — vegarlengdina frá bilunum til Hótel Imperial, þar sem allir hljóta gistingu. Næsta morgun

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.