Kirkjuritið - 01.12.1958, Side 49
I n ii I en da r írclíir
Úr liréfi frá séra Gísla prófasti Brynjólfssyni. Mig var farið að
lengja eftir Kirkjuritinu, er það kom nú i nóvemberbyrjun. Það þarf nauð-
synlega að eflast með auknum kaupendafjölda. Reykvísku prestarnir (og
víðar í kaupstöðum) ættu að ganga með það í húsin og afla því kaup-
enda. Þetta gerum við i sveitunum. „Það verða fleiri að fara að hringja
dyrabjöllunum, heldur vottar Jehova", segir Kristeligt Dagblad nú nýlega.
Séra Arngrímur Jónsson í Odda hefir hlotið styrk frá British Council
og stundar guðfræðinám í Oxford í vetur.
Minnisvarði Þykkvabæjarklausturs. Á allraheilagramessu var vígt
minnismerki um klaustrið í Þykkvabæ í Veri. Er það steindrangur mik-
ill, sem reistur hefir verið á hól norðan við kirkjugarðinn. Efst ó stein-
inn er grafinn grískur kross og undir honum áletrunin: Til minja um
klaustriS í Þykkvábæ 1168—1550. Þessu minnisvarðamáli var fyrst hreyft
á héraðsfundi Vestur-Skaftafellssýslu og kjöri hann menn til að hafa for-
göngu í málinu. —• Við vigslu hans flutti sóknarpresturinn, séra Valgeir
Helgason, frumsamið ljóð, m. a. þetta erindi:
Hér var starfað, hér var lesið,
hugleidd voru andleg mól,
í helgri trú leið hljóðlát bænin
himins til frá bljúgri sál.
Hreinlífi og helgri iðju
heitið var að vinna að.
Klausturlif var himnum helgað,
hér í framkvæmd birtist það.
Séra Haraldur Þórarinsson varð níræður 15. þ. m. Verður minnzt
í næsta hefti.
Skýrsla Kirkjuþingsins verður sökum rúmleysis enn að biða næsta
heftis.