Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1960, Blaðsíða 9

Kirkjuritið - 01.01.1960, Blaðsíða 9
KIRKJURITIÐ 3 laga. Hvor er þinn heimur í raun og veru? Er timans heimur þinn eini? Klukkan gengur eins, hvort sem þú liggur í roti eða lifir háleita hrifningarstund, árið kemur og hverfur, hvort sem þú lifir eða deyr. Þú ert næsta skammsýnn, ef þú lifir svo sem tímans heimur sé þinn eini. Vér höfum allir átt vora innri sögu og þar, á því sviði, dvelur árið eftir, þótt það sé liðið í aldanna skaut og komi aldrei aftur til baka á tímans vegi né þú aftur á vit þess þar. Það kemur samt til baka á því ári, sem nú er framundan, og ekki aðeins það, árið, sem þú hefur kvatt, lifir áfram í því ári, sem þú heilsar, minningar þess, bjartar eða dimmar, reynsla þess, farsæl eða ófarsæl, vaxtarvísar og visn- unarmerki, þetta vakir allt, lifir allt í huga þínum, hinar liðnu horfnu stundir eru líka framundan þér, þær líða í veg fyrir ókomnar stundir og leggja hljóðum fingrum sína þræði í víg- indi lífsvefsins á komandi tíð. Tímans vald er mikið, það afl, sem sogar oss áfram, í fang hulinnar framtíðar. En það eru líka til önnur lög, voldug og alvöruþung: Vér erum bundnir þeirri fortíð, sem vér höfum lifað, gengin spor hafa markað oss stefnu, litlu atvikin, við- brögðin margvíslegu í daganna rás, hafa skapað oss örlög. Það, sem þú varst í gær, það, sem þú gerðir í fyrra, ræður því, hvað þú ert í dag. Og það, sem þú ert í dag, ræður mestu um það, hvaða degi þú heilsar á morgun. n. Spekingur nokkur var einu sinni spurður, hvaða tími væri mikilvægastur í lífi mannsins. Hann svaraði: „Mikilvægasti tíminn í lífi hvers manns er ævinlega sú stund, sem yfir stendur." Oss er of gjarnt að gleyma þessum sannleika. Tíminn, sem vér mælum, dægur og eyktir og ár, er ekki annað en form, mót. Vér sköpum innihaldið. Frá því sjónarmiði séð er tíminn sama og lífið sjálft. Og líðandi andrá er efnið, sem vér höfum í höndum til þess að fylla málið. Hið liðna er gengið úr greip- um, hið ókomna er ekki í færi. Eini tíminn, sem þú hefur nokk- ur umráð yfir, er sá, sem er nú, það er þitt eina vald yfir tím- anum. I austurlenzku ævintýri segir frá kóngsdóttur, sem átti að ganga yfir akur og tína öx og henni var heitið því, að hvert
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.