Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1960, Blaðsíða 50

Kirkjuritið - 01.01.1960, Blaðsíða 50
44 KIRIÍJURITIÐ Fáir mundu hafa ætlað fyrir þrem áratugum, að svo hljótt yrði um nafn Einars H. Kvarans og rit hans jafn lítið lesin og verið hefur um skeið. En ekki er það hans sök né skaði, heldur þjóðarinnar allrar. Því víst er, að hann var með beztu og merk- ustu áhrifamönnum, sem þjóð vor hefur alið. Stórmerkt skáld, blaðamaður svo snjall, að fáir hafa verið hans líkar, spekingur, spámannlegur áhugamaður og óvenju göfuglyndur. Því er vel, að þessar tvær bækunr hafa komið út í tilefni af aldarafmæli Einars og verða vonandi til að leiða einnig til lestrar á öðrum ritum hans, sem lengi munu standa í gildi. Tómas skáld Guðmundsson sá um útgáfu Mannlýsinga og ritar merkan formála um Einar. Síðan fylgja 10 greinar og rit- gerðir Einars, þ. á m. um Gest Pálsson, Ólaf Davíðsson, Þor- stein Erlingsson og Hannes Hafstein. Allar hafa þær sér margt til ágætis, enda drap höfundur víst aldrei niður penna án þess að eitthvað væri á því að græða, a. m. k. var það alltaf fallega sagt. Og þar sem ástríða skilningsins var eitthvert mesta höf- uðeinkenni Einars og góðvildin honum manna mest í brjóst bor- in, varpa þessar minningargreinar skýru og hugþekku ljósi á þessa samferðamenn hans. Þrjár síðustu ritgerðirnar eru þó hvað veigamestar: Skapstórar konur, Fyrir fjörutíu árum í lærða skólanum og Afstaða mín til bókmenntanna. Ritgerðin um lærða skólann sýnir snilli Einars í sókn og vöm, þegar um deilumál var að ræða, og líka, hvað hann gat verið neyðarlegur — slegið menn mjúklega út af laginu með einni setningu. Ég er ekki „spíritisti“ í venjulegri merkingu, en hefur alltaf fundizt, að öllum beri að hafa opin augu og vakandi áhuga á rannsóknum sálarlífsins, ekki síður — heldur jafnvel enn frekar — en á rannsókn efnisheimsins. Og ég hef frá unga aldri dáð sannleiksást og þrotlausa baráttu Einars Kvarans fyrir hug- sjónum sínum og sannfæringu. Þess vegna átti ég líka sem þáv. formaður Guðbrandsdeildar frumkvæði að því, að honum var boðið að flytja erindi á aðalfundi deildarinnar, sem haldinn var á æskustöðvum skáldsins á Undirfelli í Vatnsdal 18. ágúst 1935. Er það eitt af þeim, sem nú er prentað í bókinni Eitt veit eg. Sú bók er allstór (397 bls.) og endar á hinum fagra sálmi, Lífs- ins fjöll. Annars eru í bókinni mörg erindi og smágreinar um sálarrannsóknirnar og baráttuna fyrir málstað þeirra, en höf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.