Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1960, Qupperneq 11

Kirkjuritið - 01.01.1960, Qupperneq 11
KIRKJURITIÐ 5 hvort tveggja væri þér gefið, hversu mikil sem umsvif þín kunna að hafa verið til þess að búa um þig og þína. Þar var gimsteinn, sem gekk þér úr greipum. Og ef þú hefur engan tíma handa sálu þinni, þá áttu allslausa sál, þegar til á að taka, hún er glötuð þér, eilífð hennar runnin þér úr greipum með tímanum, sem þú sviptir hana. Þar var meira en gimsteinn í boði, þar var um allt að tefla. Tíminn er lífið, sá tími, sem vér eigum hver fyrir sig, það gildi, sem vér gefum honum, er lífsgildið sjálft. III. Þú þokast í dag framhjá áfangamerki á ævivegi þínum. Sá vegur er ráðinn að baki að ýmsu leyti og þó mjög á huldu um margt og alls óræður framundan. Þú veizt ekki, hvaðan þig bar né hvert þig ber, nema þetta, að þú fæddist einu sinni af skauti móður, sem máski er þegar til moldar vígð, og þú hverf- ur bráðum sjálfur í moldarskaut eins og hún. En áfangamerkið, sem þú ferð hjá í dag á vegi tímans, hefur áletrun. Þar er skráö eitt nafn. Hugsaðu þér, að þú sért á ferðalagi, á óþekktum slóðum, á undarlegum vegi staddur, í dularfullu og margræðu umhverfi. Þú veizt ekki, hvernig eða hvers vegna þig hefur borið hér að, veizt ekki, hvaða afl það er, sem sogar þig áfram, veizt ekki erindi þín, veizt aðeins þetta eina, að framundan er veggur, sem innan stundar opnast og þú gengur inn í hann, eins og sá, sem í þjóðsögunni villtist í göngunum og gekk í vegginn. Þú getur ekki snúið við, þú finnur engar útgöngudyr, nema þess- ar einu, vegginn, sem lokast á eftir einum af öðrum og bráðum gleypir þig. Og hugsaðu þér nú, að þig beri þar að, sem letrað stendur nafn, nafn, sem þú kannast við, sem þú heyrðir ein- hvern tíma í bernsku, nafn, sem móðir þín nefndi, þegar mikið lá við, nafn, sem er umvafið jólabirtu og páskaljóma, nafn vin- ar. já, ástvinar. Þær stöðvar, sem þú ert staddur á, eru hans nieð einhverju móti, hann hefur verið þar fyrri, hann hefur gengið um þetta völundarhús og sett sitt fangamark á það, hann er þar, hann á þar ítök, eign, heimili, hann ræður fyrir hér. Það myndi fara fagnaðaralda um huga þinn í þessum spor- um, þú ert öruggur, þér er borgið, ef þú finnur þennan vin, sem hefur skráð nafn sitt hér til þess að minna þig á, til þess að

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.