Kirkjuritið - 01.01.1960, Blaðsíða 34
28
IiIRKJURITIÐ
Presturinn, hinn góði hirðir, rekur ekki hjörð sína til kirkju.
Hann gengur á undan, hann laðar með sannri og góðri fyrir-
mynd. Prestur á stétt sem í stól, prestur í nánu og elskulegu
samlífi við söfnuð sinn, þarf ekki að kvíða eða óttast, að tóm
sé kirkja, þegar boðuð er messa.
Ég efast ekki um, að æskan nú stendur ekki að baki þeirri,
er var fyrir hálfri öld eða svo, en það er fleira, sem orkar á
hugi hennar nú en þá og ekki allt í rétta átt. Það er fleira nú
en þá, sem truflar og leiðir frá réttum vegi. Það er, að ég
hygg, meiri vandi nú en þá að vera góður uppalandi, vera góð-
ur faðir og móðir, meiri vandi að vera góður kennifaðir, meiri
vandi að vera góður meðlimur kristins safnaðar. Hlutverk
prestsins er því sízt minna nú en áður var. Það er ekki minna
um vert nú en áður var, að presturinn sé í nánu samlífi við
fólkið, sem hann lifir með hverju sinni og á að þjóna. Til þess
eru húsvitjanir mikilsverðar og giftudrjúgur þáttur, ef þær eru
ekki framkvæmdar með þeysireið, til þess eins að uppfylla
lagaboð.
„Það var ekki kveikt ljós við þá götu, er ég gekk. Ó, gef hin-
um það ljós, sem ég þráði, en ei fékk..“ Þessi orð, sem sögð
voru fyrir meira en 50 árum, eru vitanlega líkingamál. Ilér er
átt við andlegt ljós, ljós þekkingar og Guðs trúar. Þau lýsa,
hversu innilega sárt sá, er segir, finnur til þess, hversu hann
hefir farið á mis við það andlega ljós, sem hann þráði, en
aðrir nutu.
Hverjir tendruðu þetta andlega ljós? Hversu margt ung-
mennið bjó ekki ævina út að því andlega veganesti, sem það
fékk við móðurbrjóst, við hné aldraðrar ömmu og af vörum
góðs vinar og ráðgjafa foreldranna, af vörum prestsins. Hvern-
ig mátti það ske, nema við náin kynni prestsins af fjölskyldu-
lífi safnaðarmeðlimanna.
Það er mín sannfæring, að húsvitjanir, náið samlíf sóknar-
prests og safnaðar, sé veigamesti þátturinn til þess að skapa
og viðhalda góðri kirkjusókn. Á þann hátt vex presturinn í
starfi og verður batnandi maður, starfi sínu trúrri, meiri prest-
ur. Söfnuðurinn þekkir betur prestinn, skilur hugðarefni hans
og áhugamál í prestsstarfinu og hjálpar honum til að fram-
kvæma þau. Verður betri söfnuður.
Snœbjörn J. Thoroddsen.