Kirkjuritið - 01.01.1960, Síða 51
KIRKJURITIÐ 45
var sem alkunnugt er fyrsti forseti Sálarrannsóknarfélags ís-
lands og ritstjóri Morguns á meðan honum entist aldur.
Mér finnst tilganig Einars Kvarans með starfi hans í þágu
sálarrannsóknanna ekki verða betur lýst en með þessum orðum
hans, er hann undir ævilokin gerði grein fyrir afstöðu sinni til
bókmenntanna almennt: „Síðan ég fékk nokkura ákveðna lífs-
skoðun, hefur hún legið mér í miklu rúmi. Mér hefur fundizt
það skipta svo miklu máli að komast til viðurkenningar á því,
að við höfum ekki sálir, heldur erum sálir þegar í þessu lífi,
°g höfum jarðneskan líkama. Það er afar mikilsvert um þessa
líkama okkar. Það er mikilsvert um húsin okkar, að þau séu
hlý og björt og þægileg. En úr húsunum eigum við að fara, og
það er meira vert um okkur sjálfa. Það er líka meira vert um
°kkur sjálfa en um líkamana, sem við eigum að yfirgefa, líkam-
ana, sem verða að dufti. Sálirnar, við sjálfir, eiga að lifa og
berjast fyrir fullkomnun um eilífðir eftir að hús okkar og lík-
amir eru orðin að sama og engu. Þess vegna er mest vert um
salir okkar. Ég hef ekki getað stillt mig um að láta þeirrar
sannfæringar, þeirrar vissu getið.“
Þegar auk þess, sem hér hefur verið drepið á, það er haft í
h^ga, að Einar Kvaran var svo vandlátur og vandvirkur, að
honum var „óvandur búningur, svo sem subbuleg íslnezka, þján-
lng“, er óhætt að mæla með lestri rita hans við alla.
Bréf Matthíasar Jochumssonar til Hamnesar Hafsleins. Krist-
Jan Albertsson sá um útgáfuna. — ísafoldarprentsmiðja 1959.
Séra Matthías Jochumsson lét kirkjunni eftir svo dýra erfð,
ab nafn hans mun ekki fyrnast meðan kristni er í landinu. Þess
Vegna hlýtur öllum andlegrar stéttar mönnum að leika hugur á
að vita sem bezt deili á honum og kynnast öllu, sem til er frá
hendi hans í bundnu og óbundnu máli. En þar að auki var hann
ems og goshver alls konar hugmynda og snilliyrða, bæði ver-
aldlegra og andlegra, og kemur það hvergi betur fram en í bréf-
Um hans, sem að sjálflsögðu eru öll augnabliksverk, þar sem
hann því lætur gamminn geysa eins og honum blæs í brjósti og
efni standa til hverju sinni. Hin mikla bréfabók séra Matthíasar,
Sem Menningarsjóður gaf út fyrir næstum aldarfjórðungi, hef-
Ur ótal sinnum verið mörgum stundarléttir. í þessari nýju bók
eru hréf, sem þá komu ekki í leitirnar. Það eykur enn gildi