Kirkjuritið - 01.12.1962, Side 13
KIRKJURITIÐ
443
ir af beinum Meistara Jóns komið fyrir almenningssjónir fyrr
en liér í Jjlaðinu í dag.
Það er þó kunnara en frá þurfi að segja, að fólk hér á landi
liefnr óvenju lifandi áliuga á öllum sögulegum fróðleik og forn-
minjum, og þess vegna óskaði Vísir eftir þessu viðtali við pró-
fessor Jón Steffensen, sem hefur mælt og rannsakað bein bisk-
upanna, og veitti hann góðfúslega viðtalið og leyfi til að taka
rnyndirnar sem fylgja því.
Mfíistari Jón 167 cm hár
Það hefur að sjálfsögðu verið farið einkar virðulega og ná-
kvæmlega með bein biskupanna, eins og fornminjum sæmir og
niannabeinum sérstaklega. Þau bafa verið í góðum böndum
nærfærinna vísindamanna og mun fundur Jieirra og þær rann-
sóknir, sem á þeim bafa verið gerðar, óefað verða til þess að
tengja þjóðina enn traustari böndum við fortíð sína og sögu,
og Skálholt sérstaklega, eins og fundur kistu Páls biskups lief-
ur þegar gert.
Ætla má að fólk hafi almennt langmestan áhuga á að frétta
af þeim minjum um Vídalín, sem prófessor Steffensen hefur
undir höndum, og þess vegna spurðist blaðið sérstaklega fyrir
Um þær. Prófessor Steffensen sagði að bonum reiknaðist svo
til, út frá mælingum beinanna, að Meistari Jón Vídalín liefði
verið 167 cm á Iiæð, að líkindum í meðallagi hár, miðað við
jieirra tíma kynslóð, e. t. v. í lægra meðallagi. Steffensen álítur
að höfuðstærðin bafi samsvarað líkamsstærðinni.
Allar tennur heilar
Mörgum mun verða Jjað fyrir, er þeir virða fyrir sér höfuð-
kúpu Meistara Jóns, að gefa sérstakan gaum að munnbeinum
liessa kröftugasta prédikara, sem þjóðin hefur eignazt.
Tennur lians eru allar lieilar enn í dag, eftir 242 ár. Hann
hefur vissulega ekki þurft að drepa í skörðin. Ekki liefur það
dregið úr liinu kröftuga og magnaða orðbragði. Kjálkabeinin
virðast einnig vera liin öflugustu og eru lieilleg. Um tennurnar
er Jjað annars, frekar að segja, að þær eru all-sérkennilegar,
einkum framtennurnar í neðra gómi. Þær ganga nokkuð á mis-
víxl, sumar vísa töluvert inn í munninn, aðrar dálítið út. Tvær