Kirkjuritið - 01.11.1963, Blaðsíða 16
KIRK J UIUTIÐ
398
mannlmgsjón á loft fyrir öðrum og lcitast, af veikiun mætti, vio
að fylgja henni sjálfur.
En innsta og eiginlegasta eðli kristindómsins er nú samt
annað og meira.
Hugsjónin ein er ekki nægjanleg. Það, sem skortir er, að
fylgdin við Jesú sé ekki aðeins fagur draumur, lieldur verði
hún raunveruleiki og kraftur í manns eigin lífi.
Það var ekki fyrr en ég varð hins lifandi Drottins var nieð
persónulegum liælti og tók að meta og vega sjálfan mig — eI1
ekki aðra — í Ijósi lians, að ég skildi hvað kristindómur er og
fann að það að vera „liugfanginn af Kristi“ er ekki einvörð-
ungu uppspretta siðferðishvata og endurnýjungar, lieldur frels-
andi trú.
Jesús frá Nazaret lifði í þeirri vissu að dómsdagur staiði fy1'
ir dyrum og leit á sig sem lokaerindreka Guðs á þessum síðustu
dögum. Fylling tímans liefði gerzt með sér og þegar dagaði af
annarri veröld. Takið sinnaskiptum, sagði lumn, Gtiðsríki er
í nánd! Með drottinlegu valdi reis hann með lífi sínu og hoð-
skap gegn hinni fornu erfðakenning: „Þér hafið lieyrt að sagt
var við forfeðurna .... en ág segi yður“.
Þessi spámannstilfinning hafði í för með sér að viðhorfið til
hans sjálfs hlaut að ráða úrslitum. Það fór á vissan hátt saman
að vera lærisveinn Jesú og heyra hinu komandi guðsríki tih
Þess vegna safnaði Jesús að sér lærisveinum og krafðist skil'
yrðislaust: „Fylgið mér! Hinn nýi boðskapur varð að veru-
leika í samfylgd lians.
Líferni lians var svo háttaö, að ekki gat lijá því farið að það
vekti hjá mönnum trú á sannindi boðskapar hans. Hann trúði
ekki aðeins á Guð og hoðaði Guð, iieldur leiddi sanitímanum
Guð fyrir sjónir. Guð lilaut að vera eins og Jesús opinheraði
hann með lífi sínu. Með öllu sem hann var — lífi sínu, þjaning
og dauða — sýndi liann og sannaði hug Guðs. Vegna áhrifa
lians voguðu menn að trúa á Guð og liaga lífinu á þann veg a
það geislaði af guðdómlegri kærleiksgnótt.
Á þennan hátt sætti Jesús mennina við Guð. Hann eyddi tor-
tryggni þeirra í garð Guðs með því að sýna þeim lians sanufl
eðli. 1 trausti sínu á Jesú dirfðust syndugir menn að nálgast