Kirkjuritið - 01.11.1963, Síða 42
424
KIRKJURITIÐ
Guði, ofurseldi Guð þá ósæmilegu hugarfari, svo að þeir gerðu
það sem ekki er tillilýðilegt, fylltir alls konar rangsleitni,
vonzku, ágirndar, illsku, fullir öfundar, manndrápa, deilu,
sviksemi, illmennsku, rógberar, bakmálugir, guðshatarar, smán-
arar, hrokafullir, gortarar, lirekkvísir, foreldrum ólilýðnir,
óskynsamir, óáreiðanlegir, kærleikslausir, miskunnarlausir ....
Þess vegna hefur Guð ofurselt ])á fýsnum hjartna þeirra til
saurlifnaðar, til þess að þeir sín á milli smánuðu líkami sína.
Þeir hafa umhverft sannleika Guðs í lygi, og göfgað og dýrk-
að skepnuna í stað skaparans, lians sem er blessaður að eilífu“.
Þannig sögðu stórmenni andans „rangsnúinni kynslóð“ til
syndanna á fyrstu tímum kristninnar. An liinnar sífeldlega end-
urfæðandi, varðveitandi og mannbætandi guðstrúar og guðs-
dýrkunar steypir mannsskepnan sér enn á 20. öldinni niður i
forað spillingar, svalls og nautna, og Idjóta slíkir lifnaðarhætt-
ir ævinlega og ófrávíkjanlega að leiða menningarhrun og tor-
tímingu yfir einstaklinga og þjóðir.
Það eru ólieillaöflin, sem gúkna vilja yfir hugum og sáluni
manna og gera þá, líkama og sál að verzlunarvöru. Spámaður-
inn lýsir þeim þannig: „Þeir lifa á synd lýðs míns og þá lang-
ar í misgerð þeirra“. Það eru jiessi öfl, sem reyna að telja
mönnurn trú um, að guðstrúin sé úrelt. Þau vita, að hún er liið
traustasta varnarvirki mannssálarinnar gegn allri mannaþjónk-
un og spillingu. Þar skal standa vörð um framtíðarhag og heill
THOMAS JEPPERSON spurði einu sinni: „Getur frelsi þjóðanna tal-
izt öruggt, þegar búið er að svipta hinum eina örugga grundvelli
undan því — þeirri sannfæringu 1 hugum mannanna, að frelsi þeirra
sé gjöf Guðs“.
SVEND LIDMAN sagöi svo frá í ræðu: ..Alkunnur jafnaðarmaður
sagði eitt sinn við mig: .Þegar ég var ungur, slógust menn um Það
hver ætti að bera fánann í skrúðgöngunni 1. maí. Nú fær sá fimrn
krónur, sem leggur það á sig“‘.