Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1964, Síða 7

Kirkjuritið - 01.06.1964, Síða 7
KIUKJURITIÐ 245 vandræðin, er þetla: að Guð skuli vera Iiljóður, skuli ekki skipta sér af öllum vandkvæðum mannanna, skuli hylja sjálf- an sig, að því er þú frekast fær séð. Sumra trú veiklast við slika reynslu; það er sem þeim finnist Guð liverfa burt úr lífi sínu og mannanna yfir liöfuð. Það færist einhver sljóleiki yfir það svið tilfinningalífsins, þar sem trúin hafðist við áður. En aöiir kætta ekki að þrá Guð, þótt þeim finnist hann dylja sig. Nei, þá er sem þörf sálarinnar verði mest. Þér, gem einhvern tíma liafið lesið hið nafnfræga skáldrit Hinriks Ibsens: Brandur, munið eftir, live átakanlegt sálarstríð preslsins er að lokum, er liann með þreki hins viljasterka manns hefur fórnað öllu og misst allt, og er yfirgefinn af öllum. Og hugarkvölin er mest vegna þess, að Guð svarar honum ekki, hann liylur sig; honum linnst að lokum ásjóna lians, sem opin- heraði Guð, aldrei liafa litið til sín í náð: „Ó, sú heila andans þrá eftir ró og hjartafrið! -— Hvar er kyrrð og kirkjugrið? Hvenær fæ ég sól að sjá ? Ó, minn Jesú, ásjón þín aldrei leit í náð til mín, eins og hljómur fór og fer fram hjá mér þitt líknarvald; opna nú þitt náðartjald, nóg er ef þú réttir mér skikkju þinnar skrúðafald!“ Það er gamla lirópið, neðst úr hjartafylgsnum hins trú- hneigða manns, er „brimöldur dauðans umkringja hann, elfur glötunarinnar skelfa liann“ þá stígur þetta hróp upp: „Hversu ^ongi, Drottinn — ællar þú eilíflega að dyljast? Hverja grein eigum vér að gera trúarskilningi vorum f>rn þessu vandamáli? Getum vér fundið nokkurt svar við þessari etfiðu spurningu? Svar, sem friði þann hug, er vill halda dauða- haldi í Guðstrú sína? Þótt trú vor sjái aðeins daufa skímu, kann

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.