Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1964, Side 20

Kirkjuritið - 01.06.1964, Side 20
258 KIRKJURITIÐ liinnar serkneskn byggingarlistar urn gervalla Evrópu, sunnan frá Sikiley og norður til Háteigskirkju í Reykjavík. 1 æðuni Spánverja rennur straumur serknesks blóðs. Á valdatímum Máranna á Spáni lóku fjölmargir Spánverjar Múbaineðstrú, og eftir að Márar voru liraktir frá Spáni urðu margir þeirra eftir, tóku eða höfðu tekið kristna trú og blönduðust Spánverjum- Máramenningin á Spáni var liáþróuð menning vísinda og lista. Spánn liefur aldrei verið meira menningarríki en liann var a dögum Máranna. Gætir einvaldsstjórnar Franrns mikiS í daglegu lífi fólksins? Þess gætir miklu minna á Spáni að bann er einvaldsríki en þess gætti á sínum tíina í Þýzkalandi og á Italíu. Ég dvaldist 1 þeim löndum á valdatímum Hitlers og Mussobnis. Dýrkun a þeim var langtum meiri en dýrkun Spánverja er á Franco. Enda virðist bann ekki sækjast eftir slíku. Ég bjó í tvær vikur við eina fegurstu götu Barcelona, sem lilaut fyrir nokkurum árum nýtt nafn og nefnist nú Avenida del Generalissimo Franco. Þetta virtist liið eina, sem daglega minnti á einvaldann í næst- stærstu borg Spánar. Þessa þrjá mánuði varð ég afar lítið var við pólitískan áróður, meira að segja ekki áberandi á 25 ára afmæli Falangistastjórnarinnar og sigursins í borgarastyrjöld- inni. En ég varð var við afarsterkan áróður rómversku kirkjunn- ar, einkum í sjónvarpinu, en margar sjónvarpsstöðvanna ínun kirkjan á Spáni eiga. Sá áróður lét ofl barnalega í augum °r eyrum Islendingsins. Setur kirkjan mikinn svip á mannlífiS þarna sySra? Já, mjög mikinn, jafnvel meiri en á Italíu að því er mér virt- ist. Á binu ber minna, að öflug andstaða og jafnvel liatur a rómversku kirkjunni er mikið á Spáni. Svo sagði mér Skandi- navi, sem búið befur á Spáni í áratugi og er málum þar kunn- ugur. En kirkjan er þarna ráðandi afl. Klerkar, munkar °r nunnur eru bvarvetna á ferð um gölur bæja og liorga, og oftast cr á þessu fólki asi, eins og þaö liafi mikið að gjöra. Það er líka alltaf verið að messa, raðir skriftastólanna bíða fólksins í bverri

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.