Kirkjuritið - 01.01.1965, Blaðsíða 17
KlItKJUlUTIÐ
11
allt í einu birtist andlitið, svo furðulega skýrt og fagurt og nær-
göngult og ])á verða allir jafn undrandi á því að liafa ekki séð
það strax og síðan er ómögulegt að missa sjónar af því, augun
lialda manni föstum, maður mætir þeim alltaf, livernig sem
litið er á myndina. Og allt, sem er á spjaldinu, breytir um blæ.
Það, sem áður var kuldaleg, sviplaus, þögul auðn, er orðið um-
gjörð auglits, sem bregður furðulega sterku og hlýju lífi yfir
allt og liorfir djúpt inn í sjálfan þig.
Þannig er það, þegar Jesús Kristur kemur fram, birtist liinni
innri sýn, þegar þú færð náð til að sjá, hvernig liann er í öllu
þessu óskiljanlega munstri lífsins og opinberar þá liugsun, sem
að baki þess er. Og sá, sem kemur auga á hann, undrast það
mest að bafa ekki séð hann strax og lotið lionum og tilbeðið
liann, og að nokkur skuli vera til, sem ekki sér liann, lýtur
honum, tilbiður liann.
V.
Fyrsta sól nýs árs befur lieilsað.
Handan þeirrar sólar eru augu, sem horfa á þig, eins og þau
borfðu á bersynduga, augu Jesú frá Nazaret, eins og þau horfðu
á sjúka og þjáða, snauða og blinda, eins og þau litu til læri-
sveinsins, sem afneitaði, og ræningjans, sem bað í örvæntingu,
og það er tillit liins eilífa föður, sem birtist í þeim augum, þau
eru skuggsjá þess hjarta, sem er uppsprettan, uppspretta veru-
leikans, lífsins, skuggsjá þeirrar vitundar, sem gleðst með þér
og líður með þér og líður fyrir þig, líður krossins þraut fyrir
alla beimsins liarma, glópsku og glæpi, af því að bonum er það
fullkomin, lieilög alvara, að litla hjörðin, börnin blindu á
litlu jörð, livert eitt þeirra, skuli eignast og eiga ríkið hans,
ríkið, sem er réttlæti, friður, fögnuður, ríkið, þar sem liugurinn
og viljinn, sem birtist í Kristi Jesú, er orðinn allt í öllu.
Þetta er þér boðað um leið og nýtt ár lieilsar. Þannig býður
sjálfur Drottinn, faðir allra sólna, þér gleðilegt ár. Og orð bans,
náð lians, skal vera þér ný á hverjum morgni og gefa þér nýtt
líf, nýjan lieim.
I'ak undir lífsins boðskap, með bæn fyrir þér og þínum,
fvrir þjóð og veröld, með bæn í Jesú nafni. Því Jesús Kristur
er lausnin, vonin, ljósið í diminum heimi, bin eina, eilífa sól.
Amen.