Kirkjuritið - 01.01.1965, Síða 61
KIRKJURITIÐ
55
þurfa að eiga kost á raunverulegum útvarps-guðsþjónustum —
helgistundum í útvarpinu ætluðum fyrir það sérstaklega og
sniðniun eftir því. Til þess að liæfa í mark hljóta þær að liafa
a s®r annað yfirbragð en messur fluttar í kirkju. Allir viður-
Ivenna t.a.m., að lestur Passíusálmanna nýtur sín vel í útvarpi,
vitaskuld ekki síður þ ær helgistundir, sem skorinn er stakkur
eftir möguleikum þessa undursamlega tækis.
„Utvarpsmessan“ er ófullnægjandi uppbót fyrir kirkjugöng-
una, og þó láta margir sitja við að lilýða á liana með öðru eyra,
en kirkjugangan fellur niður fyrir bragðið. Þess vegna er „út-
v arP®niessan, óæskileg.
RÁÐLEGGINGARSTÖÐ
(Frétt jrá Biskupsskrifstofunni)
Eins og kunnugt er af fréttum, hóf Félagsmálastofnunin rekst-
l,r ráðleggingarstöðvar um fjölskylduáætlanir og hjúskapar-
'andamál á s. 1. vori. Um líkt leyti bauð Félagsmálastofnunin
^jóðkirkjunni að taka við þessari stöð til fidlrar eignar og um
ráð'a. Biskup og Kirkjuráð ákváðu að þiggja þetta boð, og hinn
janúar s. 1. fór fram formleg afhending stöðvarinnar. Hannes
Jónsson félagsfræðingur, forstöðumaður Félagsmálastofnunar-
•nnar aflienti ráðleggingarstöðina, og biskupinn, herra Sigur-
Ljörn Einarsson, tók við henni fvrir hönd Þjóðkirkjunnar.
Læknir stöðvarinnar verður áfram Pétur H. J. Jakobsson yf-
trlæknir og honum til aðstoðar Steinunn Finnbogadóttir 1 jós-
nióðir. Prestur stöðvarinnar befur verið ráðinn fyrst um sinn
séra Hjalti Guðmundsson.
Ráðleggingarstöðin er til húsa á Lindargötu 9, 2. liæð (Lind-
arbae), Revkjavík.
^ iðtalstími læknis er mánudaga kl. 4—5.
Viðtalstími prests er þriðjudaga og föstiulaga kl. 4—5.